Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

smáblogg

03. janúar 2010 klukkan 16:10
Við höfum farið út á hverjum degi núna undanfarið til að prófa skíðin og venjast. Get nú ekki státað mig af mikilli og hraðri yfirferð en nú gengur þetta út á að læra tæknina (eins og ég held að maður eigi að gera.....). Þórður verður fljótur að ná þessu og verður gaman að sjá þróunina þegar skíðanámskeiðið byrjar. Stefán hefur verið að prófa snjóbrettið og var ekki á því að gefa því neinn séns en eftir daginn í dag þá er hann jákvæðari. Nú pressa ég á Hauk að láta vaða og kaupa sér útbúnað - hundleiðinlegt ef hann ætlar ekki að nýta tækifærið með okkur....
Við erum alveg að "fíla" það að búa á stað þar sem veturinn er virkilegur vetur, allir þessir möguleikar, bara dásemd. Hvaða staður á Íslandi gæti komist næst þessu....?? Við þangað!!

Ætla út í frostið og taka góðan göngutúr áður en ég elda kvöldmatinn sem verður gómsæt ýsa, kartöflur og rúgbrauð.
Akureyri er ansi efnileg í augnablikinu. Minnir bara nokkuð á Winnipeg þar sem nauðsynlegt var að vefja trefli fyrir nefið og kinnarnar kólnuðu töluvert á stuttum hring um Eyrina nú síðdegis.
Nágranni vor sem ættaður er frá Sviss var að mæta eftir jólafrí við að moka snjó þar og tók til við að ná bíl sínum úr skafli. En þegar stúlkan lagði af stað þá voru afturhjólin frosin föst og bíllinn fór ekki langt.
Gleðilegt ár.
#1
03. janúar 2010 klukkan 17:36
Frábært að þú sért byrjuð á gönguskíðunum, þú verður fljót að ná tæninni og þá kemur meiri hraði. þessi tími í Noregi er frábær og þá er sko vetur. Ef þú vilt upplifa eitthvað svipað á Íslandi þá er Ísafjörður staðurinn :o) frábær skíðaparadís...5 mín að komast á svæðið
#2
03. janúar 2010 klukkan 22:24
frábært að vera komin á gönguskíðin.
Ég held að það séu einmitt þessir tveir staðir sem komast þessu næst, þe. Akureyrir og Ísafjörður, amk hvað varðar snjóinn. Ég mæli með Akureyri, afslappað og þægilegt. Hvanneyri er allavega ekki staðurinn og eina skiptið sem við notuðum gönguskíðin okkar í fyrra var þegar við fórum með þau norður í Eyjafjörðinn
#3
04. janúar 2010 klukkan 08:25
 
Björk
Við gerum bara klárt í Borgarfirðinum, hér er allt sem þarf, svo er óskaplega stutt í marga frábæra skíðastaði af því Borgarfjörður er svo miðsvæðis, jájájá...ekki leita langt yfir skammt.
#4
04. janúar 2010 klukkan 14:38
 
Rakel
Tek undir með Gamla Svepp, Akureyri er staðurinn. Gönguskíðabrautirnar í Kjarnaskógi eru flottar hjá Jóa Holst, troðnar á hverjum degi!
#5
05. janúar 2010 klukkan 18:21

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.