Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Áskorun dagsins...

02. janúar 2010 klukkan 17:28
....ég skoraði á Hauk að elda kvöldmatinn og þvílík dásemd mmmmm, verð að deila:

4 kjúklingabringur sem skornar eru í tvennt, brúnaðar á pönnu.
Laukur saxaður og steiktur í potti, kjúklingurinn settur saman við, kryddað með salti og pipar. 1 1/2 dl grænmetissoð, safi úr einni sítrónu, 1 tsk oregano, 1 tsk majoran bætt í ásamt einni dós af tómötum (niðursoðnum). Látið krauma í 30 mín. Ein rauð niðursöxuð paprika og 1 lítil dós tómatkraftur (70 gr) sett út í og látið krauma áfram í 10 mín. Borið fram með salati og annaðhvort kartöflum eða hrísgrjónum.


Uppskriftin er fengin úr einni af bókunum sem hann fékk í jólagjöf Cool
Hljómar rosalega vel :) Verði ykkur að góðu :)
#1
02. janúar 2010 klukkan 17:38
 
Edda
sko þetta getur karlinn
#2
02. janúar 2010 klukkan 18:54
sniðugt!!
#3
03. janúar 2010 klukkan 10:40

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.