Gleðilegt nýtt ár!!
01. janúar 2010 klukkan 21:37
Takk fyrir allt gamalt og gott, njótið lífins og sjáið tækifærin í árinu 2010, þau eru sko allt um kring!!
Það sem ég ætla að gera á árinu 2010 er eftirfarandi:Hafa gaman af lífinu.
Vera til staðar fyrir drengina mína og manninn.
Njóta þess að vera í góðra vina hópi.
Stunda námið af fullum krafti.
Ferðast.
Ganga á fjöll.
Hlaupa.
Læra á gönguskíði.
Markmið desembermánaðar var:
Að hlaupa eða ganga 18 daga - tókst ekki, fór 13 sinnum
Að hlaupa eða ganga 100 km - tókst ekki, fór um 60 km
Markmið janúarmánaðar er:
Að hreyfa mig markmisst 18 daga
Að hlaupa, ganga, hjóla 100 km
Að léttast um 1 kg.
http://jonalindk.bloggar.is
Jóna Lind
Flott markmið og þú ferð létt með þetta. Síðan bætist við skíðagangan í hreyfimarkmiðunum :o)
#1
01. janúar 2010 klukkan 23:55
Sólrún Halla
Sæl skvís og gleðilegt ár:)
Þú ert alltaf að standa þig vel í þínum markmiðum og það borgar sig ekkert að svekkja sig á að þú komist ekki allt sem þú ætlar þér, það er hugurinn sem gildir og stundum koma mikilvægari hlutir upp eins og að fiflast með strákunum þínum og það tekur nú alltaf á að atorka eitthvað með þeim og þá sérstaklega ef þið eruð að fíflast í snjónum. Ekki gleyma því Sigga mín að þú ert að standa þig vel í Noregi, hvort sem er í námi eða hreyfingu, haltu bara þínu striki!
jæja vinkona, sakna þin og vona að þið hafið það gott
kv. Solla(sem bara stækkar þessa dagana)

#2
03. janúar 2010 klukkan 14:25