Annáll 2009
31. desember 2009 klukkan 13:04
Janúar: Við Tedda vinkona byrjuðum á MRL námskeiði hjá Önnu Berg, besta leikfimi sem ég hef prófað. Auk þess var ég eins og áður dugleg að mæta í spinning tíma í Borgarnesi. Mjög góð blanda þetta.
Febrúar: Við settum húsið okkar á sölu, vegna fyrirhugaðs flutnings til Noregs.
Mars: Skilaði minni fyrstu vísindagrein inn til IAS.
Apríl: Sendi út umsókn um skóla og Haukur sótti um vinnu á Lesterberg gård.
Maí: Fékk bréf frá skólanum, komst inn. Fengum líka að vita að við fengjum íbúð á stúdentagörðunum. Haukur fékk að vita að hann fengi vinnuna í Noregi. Leikskólapláss á Kroer Friluftsbarnehage var einnig tryggt.
Júní: Hætti að vinna hjá Vesturlandsskógum, seldum íbúðina, Stefán kvaddi skólann sinn og Þórður hætti á leikskólanum Andabæ.
Júlí: Ég og systur mínar tókum þátt í 3 km hlaupi á landsmóti UMFÍ, vorum allar í stíl í appelsínugulum bolum með appelsínugul buff í hárinu! Vorum í fríi í Skagafirðinum og sigldum svo út á vit ævintýranna, vorum í viku í bústað í Danmörku. Fékk greinina senda eftir að ritrýnendur höfðu farið yfir, hafði ekki tíma til að fara í að lagfæra.
Ágúst: Komum til Ås, ég byrjaði í UMB, fór í námsferðalag til Buskerud, Haukur byrjaði í vinnunni sinni, Þórður byrjaði á Kroer friluftsbarnehage og Stefán í Ås ungdomsskole. Hreinn meðhöfundur fór yfir greinina og lagfærði og sendi inn. Bebba, Sgtryggur og Óskar Óðinn komu í heimsókn.
September: Pappírsvesen, aðlögun, fengum kennitölurnar og heimilislækni, byrjaði að hlaupa, fór í gönguferð í Nordmarka með hressum stelpum.
Október: Vinna, skóli, Palli og Torfi komu í heimsókn.
Nóvember: Haukur fór í veiðiferð til Svíþjóðar með íslenskum félögum hér, hann byrjaði einnig í ræktinni. Vinna, skóli. Ég náði markmiði mínu og hljóp 5 km án þess að stoppa. Loksins kom tímaritið út og fyrsta vísndagreinin birt.
Desember: Próf, snjórinn kom - mikil vinna hjá Hauk,þokkalega dugleg að hreyfa mig, Björk og Þórhildur komu í heimsókn og síðan komu mamma og pabbi og voru hjá okkur um jólin.

Edda
og þá er við hæfi að óska ykkur gleðilegs nýs árs
#1
31. desember 2009 klukkan 13:26
Gleðilegt ár Sigga mín og takk fyrir þau gömlu :) Hafið það sem allra best í útlandinu á nýja árinu!
Knús til þín og þinna!
Knús til þín og þinna!
#2
31. desember 2009 klukkan 13:50
Gleðilegt ár og flottur annáll hjá þér. Nóg af ævintýrum framundan í Noregi
#3
01. janúar 2010 klukkan 23:53