Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

"Maður á að hafa vit á því að vera í góðu skapi"

29. desember 2009 klukkan 19:56
...rakst á þessa setningu í Hjartslætti Hjálmars Jónssonar en þarna vitnaði hann í stórmerkilegan Skagfirðing Dúdda Skörðugili. Mér finnst þetta nokkuð gott og skora á fólk að hafa þessa setningu að leiðarljósi, ég ætla að hafa þetta á bak við eyrað, svo mikið er víst. Ég er að setja saman smá áramótapakka í huganum, með markmiðum og fögrum fyrirheitum fyrir árið 2010 Smile

Hér er brunakuldi og ekkert annað að sjá í kortunum næstu vikur nema frost, frost og aftur frost. Núna er frostið hér í Ås komið í -16°C.
Við réðumst í skíðakaup í dag, byrjuðum á að fjárfesta í gönguskíðum á mig og Þórð fengum þau í tilboði í XXL. Keyptum einnig ansi veglega smørretösku en þegar maður á gönguskíði þá verður maður að kunna að smyrja rétt og eiga mismundandi "klístur" sem eiga við í mismunandi miklu frosti og í misblautum/þurrum snjó - já þannig að nú stúderar maður þessi fræði. Hefði kannski verið einfaldara að kaupa bara smørrefri skíði en það er ekki mælt með því í skíðaskólanum sem Þórður fer í eftir áramótin en skíðin voru keypt eftir ráðleggingum þaðan. Núna er verið að festa bindingarnar á og verða skíðin sótt á morgun og vígð í kjölfarið Cool

Eftir að mamma og pabbi fóru hóf ég lestur jólabókanna, er búin að lesa ævisögu Ásu Guðmundsdóttu Wright "Kona þriggja eyja" mér fannst hún mjög góð og mæli með henni fyrir þá sem hafa gaman að að lesa um ævintýafólk sem fer ekki sömu leið í lífinu og aðrir. Auk þess er þessi bók mjög vel skrifuð og mikil heimildavinna unnin í kringum þetta hana. Líkar einhvern vegin svo vel við þannig bækur.
Núna er ég langt komin með bók Hjálmars Jónssonar, Hjarslátt - hún er allt í lagi, endurminningar hans og af allt öðrum toga en bókin um Ásu. Klára Hjálmar í kvöld og ætli ég taki þá ekki Svörtuloft eða Auði.

Læt þetta duga í bili, góðar stundirWink

vííííí til lukku með skíðin, það er nú ekki hægt að vera búandi í Noregi án þess að eiga skíði. En að ganga á gönguskíðum er frábær hreyfing...lykke til :o)
#1
29. desember 2009 klukkan 20:53
 
Guðrún Daníelsdóttir
Sælar frú mín góð og jólin til þín og þinna......... :-)
Gott var að lesa að jólin hafa verið þér og þínum ánægjuleg og gaman fyrir ykkur
að fá gesti frá Fróni í heimsókn :-)
Og þessi setning...að maður eigi að hafa vit á því að vera í góðu skapi ...hún slær í gegn allavegana í mín eyru.
Nýárskveðjur
Guðrún Dan og co Borgarnesi
p.s. nýtt netfang hjá mér er gudrun.danielsdottir@arionbanki.is
#2
30. desember 2009 klukkan 10:19
sæl og blessuð
bara að kvitta fyrir mig, var að lesa jólablogg.
tilhamingju með nýju skíðin og skemmtið ykkur vel á þeim og hafið það bara alveg rosalega gott það sem eftir er af jólafríinu.
kveðja frá Hvanneyri
#3
30. desember 2009 klukkan 11:11

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.