Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Stóru bóka og húfujólin

25. desember 2009 klukkan 12:40
Takk fyrir okkur kæru vinir og ættingjar fyrir jólakveðjur og gjafir.

Það verður alveg óhætt að minnast þessara jóla sem stóru bóka og ekki síður húfujólanna!
Stefán fékk þessa titla:
Gyllti áttavitinn höf. Philip Pullman
Býkúpa höf: Mark Walden
Stórhættulega strákabókin höf: Conn og Hal Iggulden
Þórður fékk þessa titla:
Guligoggur, hvar er mamma
Jólabókin
Herra sterkur
Hver er sterkastur
Kertasníkir leysir frá skjóðunni
Haukur fékk þessa titla:
Eventyrlige Follo
Norge på langs
Veisluréttir ferðalangsins höf Halla Hauks
Íslensk knattspyrna 2009
Ég fékk þessa:
Kona þriggja eyja - ævisaga Ásu Guðmundsdóttur Wright
Við Haukur fengum svo þessa titla saman:
Litla stúlkan og sígarettan höf. Benoit Duteurtre
Auður höf. Vilborg Davíðsd.
Hjartsláttur Hjálmars Jónssonar
Svörtuloft eftri Arnald Indriða.

Samtals fengum við 9 húfur og eitt eyrnaband, ýmislegt jóladót, dvd diska, kaffi, te, nammi og margt fleira.
Við gáfum Stefáni snjóbretti og skó og Þórður fékk snjóbretti sem maður situr á (ekki beint þota).
Við strákarnir gáfum Hauk norsku bókatitlana og Lacoste herrailmvatn og ég fékk Garmin 205 hlaupaúr frá þeim.

Mamma og pabbi hafa haft það gott hér hjá okkur og held að þetta séu ekkert svo ólík jól en þau eru vön. Sigríðarsúpan í forrétt, lamb í aðalrétt, eplakaka í eftirrétt (epli soðin í mauk og sett í skál í lögum á móti brauðraspi, borðið fram með rjóma).

Haukur hefur unnið mikið undanfarna daga og vikur en mér er eiginlega nóg um!!! Var stundum þreytt á álaginu og ónæðinu sem hann varð fyrir á Hvanneyri en þetta toppar það alveg, held stundum að norðmenn séu að koma fram við okkur íslendingana eins og við heima gerum við t.d. pólverja.....Embarassed En hann er að finna taktinn og sennilega er þetta bara þannig að ef maður réttir litla puttann þá vilja þeir taka alla höndina.
Núna erum við í rólegheitum hér, mamma kíkir í bækur og pabbi og Haukur leggja sig, strákarnir horfa á félagana á Hvanneyri í sjónvarpinu en við fengum Línu langsokkur sem leikfélagið setti upp á dvd Laughing
Seinna í dag ætlum við að fara til Askim þar sem Stína systir mömmu býr og ætlum við að borða með henni og Ib (kærastanum hennar) hangikjöt og tilbehör Cool

Það eru þrjú ný albúm á myndasíðunni:
Falukorv 13. des 2009
Heimsókn 17.-20. des 2009
21.-25. des 2009
Stóru bókajólin já... En ágætis bækur... Kona þriggja eyja er örugglega góð en ég las fyrri ævisögu Ásu sem kom út fyrir nokkrum árum eftir annan höfund.. Ég fékk tvær bækur það er að segja Kona þriggja eyja frá Valda og aftur Kona þriggja eyja frá Pabba og konunni hans... ég mun skipta henni í Matur og drykkur... Garmin hlaupa úr... Næs..... Valdi fékk Og þá kom Fergusson... frá pabba og Sveppabókina frá mér....
Bestu jólakveðjur frá Hvanneyri en hér er dásamlegt jólaveður, snjór, bjart og kyrrt...
Guðrun og Valdi
#1
25. desember 2009 klukkan 13:13
 
Takk fyrir okkur - njótum og nýtum ;)
#2
25. desember 2009 klukkan 20:06
 
Helga Ţorbjörg Hjálmarsdóttir
Sæl verið þið öll sömul Gleðileg jól og allt það rakst á síðun aþín aí morgun þegar ég var að vafra um á netinu, það var gaman að sjá að foreldrar þínir skyldu vera hjá ykkur en annars er allt gott að frétta að heiman veturinn kom á aðfangadagskvöld með snjó og kulda, hafið það gott og við óskum ykkur gleðilegs nýs árs. Jólaknús Helga Þorbjörg.
#3
26. desember 2009 klukkan 11:26
Gleðileg jól...flott hjá þér að fá hlaupaúr, nú getur þú farið að tæta um allt hehe
#4
26. desember 2009 klukkan 14:01

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.