Af gestakomum...
21. desember 2009 klukkan 22:14
Hér er búið að vera líf og fjör síðustu daga og ekkert lát á.
Fimmtudaginn var komu Björk og Þórhildur hingað og ég verð að segja það að Noregur gat ekki tekið betur á móti þeim. Sól og mjög mikið frost, snjóhula yfir öllu þannig að það brakaði í og auðvitað logn. Við brunuðum hingað heim og fengum okkur snarl og síðan lá leiðin til Dröbak í jólahúsið. Ég hafði þarna um morguninn sett "Ribbe" í ofninn sem mallaði allan daginn og um kvöldið borðuðum við þennan norska tradisjonalmat. Fengum okkur líka rauðvín með og smá romm og aðeins Baileys....það var bilað stuð hjá okkur. Hringdum í Sigvalda og létum öllum illum látum. Björk aðstoðaði Stefán sem bakaði Brownies, ég fékk nudd og litaðar augabrýr og allt!
Föstudagsmorguninn tókum við rólega en fórum um hádegið í göngutúr, hefðbudninn hring sem ég fer gjarnan, 5 km. Síðan lá leiðin til Ski þar sem ég leyfði dömunum að leika lausum hala í H&M, XXL og "ríkinu". Þegar heim kom tróðum við pylsum, lompum og heitum drykkjum á brúsa (kakó og glögg) í bakpoka og örkuðum út í skóg vopnuð vasaljósum, luktum og höfuðljósum. Þar hittum við fleiri íslendinga við bál og grilluðum pylsur á greinum og drukkum heitu drykkina okkar. Þetta var ljúf stund og mikið gaman. Við fórum síðan með gestina til Önnu Katrínar og Snædísar þar sem við fengum okkur meira glögg og rauðvín. Kvöldið endaði svo hér heima við eldhúsborðið þar sem við spjölluðum frameftir nóttu.
Laugardagurinn var einnig tekin rólega hér fram að hádegi en þá fórum við í þriggja tíma göngu um Campusinn, skoðuðum elstu húsin hér s.k. prófessorahús og skólabyggingarnar. Mjög fróðlegt og skemmtilegt enda hafði farastjórinn Ragnar tekið kúrs í byggingarsögu. Best að minnast á það hér og nú að við fundum Drøbakveien 21 og Lyngveien 19 þar sem Bjarni og Dísa bjuggu þegar þau voru hér við nám og störf fyrir ca fjórum áratugum.
Eftir gönguna vorum við bara í rólegheitum hér, elduðum fiskisúpu og spjölluðum og höfðum gaman fram á nótt.
Á sunnudagsmorguninn birtust hér gestir, fyrrverandi vinnufélgi minn hann Siggi Freyr og fjölskylda en þau voru á leið til Þýskalands. Höfðu verið nóttina áður í Osló og stefndu á að keyra til S Svíþjóðar í gær til að ná ferju yfir, gaman að hitta þau en þau búa í Stordal sem er ekki langt frá Álasundi.
Við skutlurnar (+Þórður) fórum svo (aftur) til Dröbak þar sem við önduðum að okkur jóla stemmingu, fórum aftur í jólahúsið og fengum okkur dýrindis snarl á mjög notalegu kaffihúsi.
Við Stefán skutluðum þeim svo á völlinn í gærkvöldi og biðum svo í einn og hálfan tíma eftir mömmu og pabba. Þar hófst eitt ævintýrið enn en önnur taskan þeirra skilaði sér ekki og töfðumst vð lítillega út af því en mamma tilkynnti um það og það tók allt smá tíma.
Í morgun hringdi kona frá Fredriksstad sem hafði í misgripum tekið vitlausa tösku og var miður sín yfir því, en þetta reddaðist allt því hún var komin hingað í hús fyrir tólf á hádegi
Við erum svo búin að taka innkaupatúr til Ski, þar sem versluðu voru jólaföt á drengina, auk úlpu og vetrarskó á Stefán (hann er kominn í skóstærð 45!!!)
Í kvöld kom Stína systir mömmu í heimsókn og við erum búin að hafa það ósköp notalegt við kaffispjall.
Síðustu dagar hafa semsagt verið dásemdardagar og það er ekkert lát á.

Björk
Takk fyrir frábæra daga elsku Sigga, Haukur, Stefán og Þórður ofurkappi. Er enn með sælubros á vör og staðráðin í að vera í norskujólastemmingunni....Bara að njóta lífisins. Annars vorum við Þórhildur glaðar að sjá að Íslendingar eru bara líka í notó stemmingu fyrir jólin, í nótt ( ca kl. 03.00) var varla bíl að sjá fyrir utan Smárann..og landinn virtist bara vera að hafa það kósý heima!!!!! Hafið það sem allra best, verð í bandi:)))) Knús og takk fyrir mig.
#1
21. desember 2009 klukkan 22:53
Ţórhildur
Takk fyrir frábæra helgi kæra fjölskylda. Það er nú ekki neitt sjálfgefið að taka inn á heimilið svona ofurskvísur sem hafa mikið dálæti á rauðvíni og almennri skemmtan. :-) EN þetta voru frábærir dagar, það var ósköp gott að leggjast í bólið sitt undir morgun, en saknaði þó aðeins bláa svefnbekksins,hrotanna og spjallsins við Þórð morgunhana, ásamt p....... :-))) Njótið lífsins kæru vinir, verð í bandi.
Takk fyrir mig.
Takk fyrir mig.
#2
22. desember 2009 klukkan 00:10
Jemineini... Þvílíkt stuð..... Ég á enn eftir að heyra ferðasöguna yfir rauðvínstári hjá Björk... Hlakka mikið til....
Bestu kveðjur til Norge...
Bestu kveðjur til Norge...
#3
25. desember 2009 klukkan 13:18