Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Á morgun, þann 17. desember

16. desember 2009 klukkan 21:34
Á morgun er 17. desember, afmælisdagur ömmu Siggu Smile Hún hefði orðið 89 ára. Ég hugsa oft til hennar en það er ýmislegt sem hún mátti reyna sem hefur mótað lífsviðhorf mitt. Gleymi því til dæmis ekki þegar hún sagði mér þegar ég var lítil að það væri ekki sjálfsagt mál að ganga menntaveginn, það hefðu ekki allir tækifæri til þess....ég var ekki gömul (örugglega innan við 10 ára) og það var áfall að heyra þá staðreynd.
Seinna áttum við margar góðar stundir saman þegar ég var í skóla á Akureyri, þá vildi hún endilega að ég kæmi í hádegismat á hverjum degi og það var tími sem var mjög dýrmætur, við ræddum margt og mikið. Hún var algjör hetja hún amma mín.

Á morgun koma tvær vinkonur úr Borgarfirðinum í þriggja daga heimsókn, það verður ýmislegt brallað eins og ég hef áður minnst á. Síðan þegar þær fara á sunnudaginn koma mamma og pabbi en þau verða hér hjá okkur í viku Smile
Það má því gera ráð fyrir litlu bloggi á næstunni.
Hafið það gott, njótið lífsins og látið vaða Laughing

 
Didda frænka
Til hamingju með afmæli Mömmu
Þú skrifar svo fallega um hana en svona var hún, hreint ótrúleg.
Njóttu daganna sem fara í hönd

Kveðja Didda frænka
#1
17. desember 2009 klukkan 07:46
Hæ vinkona
ég var að fá póst frá Inga Lámi göngunni. Ég er ekki að fara í ár en mæli með þessari göngu, hún er frábær. Fín æfing fyrir vasa 2011 :o) Set þetta inn fyrir þig til upplýsingar



Lørdag 13. mars arrangeres Norges største jentelangrenn for 18. gang på Lillehammer!

Vi har masse spennende å by på denne helgen og ønsker deg velkommen på startstreken - om du vil gå 15 km eller 30 km.

Benytter samtidig anledningen til å ønsker deg og dine en riktig god jul!

Påmelding gjør du på www.inga-laami.no

Med god juleklem
fra
Elisabeth
#2
17. desember 2009 klukkan 09:35
Greinilega góð amma, eins og þær eru nú svo margar. En það er samt ekkert sjáflgefið með það eins og annað!! En ég veit að hún var þér mjög kær því ég hef heyrt þig tala um hana áður. Það er gott að eiga góðar minningar og maður á að brosa upphátt þegar maður hugsar um þær!!

Njóttu heimsóknanna þinna, það er líka gaman, því þá ertu að búa til góðar minningar.

Knús sæta mús
#3
17. desember 2009 klukkan 10:58

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.