Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

uppskriftablogg

14. desember 2009 klukkan 21:33
Fyrsti virki dagur í jólafríi.
Við Þórður vorum í róelgheitum hér í morgun en það var samkomulag hjá okkur að hann færi á leikskólann þessa viku en bara stutt á hverjum degi.
Hann var mjög ánægður með leikskóladaginn, krakkarnir fóru og sungu fyrir gamla fólkið, fengu smákökur og síðan komu þau við heima hjá Benedikte sem er jafnaldra Þórðar og sáu hunda og hænur. Einhverntíman í ferlinu sáu þau kanínur sem voru lausar.
Á meðan þeir voru í sínum skólum og vinnu drengirnir mínir, gerði ég smá tiltekt á heimilinu (og er ekki búin).  Ég fór í Ås treningsenter með Bríet og fékk að fara í prufutíma í Spinning. Þetta var alveg ljómandi tími, frábær hjól og mjög góður leiðbeinandi sem stillti hjólið mitt og virtist vera mjög vakandi fyrir því hvernig allir höfðu það á hjólunum. Kennarinn heitir Lise, væn kona, engin beinagrind sem söng með og setti upp hreindýrshárspöng þegar jólalögin fórum að hljóma...gat ekki annað en hugsað til Erlu og Gunnu í Borgarnesi á þessum tímapunkti Smile
Tíminn var í 45 mínútur og eftir hann fórum við Bríet í annan sal til að teygja, þá kom til okkar maður og spurði hvort við vildum ekki kíkja í Pilates tíma sem hann var að byrja með en það hef ég aldrei prófað áður. Þetta var alveg frábært og góð samsetning að taka fyrst spinning og svo pilates en jeminn eini, ég á örugglega eftir að finna vel fyrir þessu á morgun!!! Ég er að bræða það með mér að kaupa mér kort eftir áramót og hafa með hlaupunum, maður hefði gott af því. Í þessari líkamsræktarstöð eru auk spinningsalarins, aerobiksalur - mjög stór, skvass-salir og ótrúlegt magn af tækjum í þremur öðrum sölum. Stefán er heitur fyrir því að fá kort þarna og er að vinna í því að fá einn félaga sinn með sér, þannig að þeir gætu þá æft í salnum og tekið líka skvass-tíma.

Eftir átökin fór ég í sturtu (n.B heima hjá mér) sem er nú ekki í frásögu færandi nema hvað að ég prófaði nýjan skrúbb. Ég keypti hann ekki dýrum dómum út í búð....eða jú ég keypti það sem þurfti í hann út í búð en verðið hefur kannski verið 2 krónur norskar!!
Hér er uppskrift (gróflega áætluð)
Kaffiskrúbbur
Kaffikorgur síðustu uppáhellingar, má ekki vera frá deginum áður.
1/2 dl olía, ég notaði sólblómaolíu (ódýr) en það má nota hvaða olíu sem er t.d. kókosolíu, ólífuolíu.
Svo er hægt að nota ilmdropa ef maður á (ég á ekkert svoleiðis og sleppti því þá bara).
Hræri þessu saman og skrúbba.
Þetta er ekkert sérlega hreinlegt meðan á því stendur en þetta virkar
Wink Silkimjúk húð og olían gerir það að verkum aðóþarfi er að bera nokkuð krem á sig á eftirWink
 
Eftir leikskóla bökuðum við Þórður þessar súkkulaðibitakökur:

1 bolli mjúkt smjör
3/4 bollar sykur
3/4 bollar púðursykur
1 tsk vanillusykur
2 egg
2 1/4 bollar hveiti
1 tsk lyftiduft
1/2 tsk salt
1 1/2 bolli saxað suðusúkkulaði
1 1/2 bolli m&m

Ofninn stilltur á 190°C (ég er ekki með blástursofn).
Smjör, sykur, vanilla hrært mjög vel. Eggin sett saman við og hrært enn betur. Hveit, lyftiduft og salt sett út í og að lokum er súkkulaði og m&m hellt út í og hrært.
Sett með teskeið á plötu, bakað í 7-8 mín.
Þetta verða um 60-70 kökur.

Þetta smellpassaði í annað kökuboxið á heimilinu og þá er spurning um að baka eitthvað í hitt......

Hér byrjaði að snjóa lítið eitt í morgun og nú í kvöld alveg þónokkuð inn í Osló, Haukur er því farin af stað að salta og moka og sanda.
Jóna Lind KristjánsdóttirFrábćrar uppskriftir báđar tvćr, ég mun örugglega prófa skrúbbinn :o) Líst vel á planiđ ađ skella ţér í rćktina, séstaklega ţegar ađstađan er svona góđ...og pílates er ćđi. Ţegar ég var í Lillehammer var ég í leikfimi hjá Friskis&svettis, í Hákonshall, en ţćr eru á mörgum stöđum í Noregi, mjög skemmtilegt og fjölbreytt. En svo var ég auđvitađ mjög dugleg ađ ćfa á skíđum enda draumaađstađa :o)
#1
14. desember 2009 klukkan 23:17
 
Ţórunn Harđar
Ohh hvað þið hafið haft það náðugt mæðginin . . . svona á þetta að vera í desember! En þú ert nú meiri snillingurinn Sigga mín - hristir snyrtivörur fram úr erminni eins og ekkert sé, það skyldi þó ekki vera að "ný lína" væri á leiðinni . . . bara snilld að nýta úr eldhúsinu ;-) ég ætla pottþétt að prófa þetta í kvöld eftir smákökubaksturinn!
Jólaknús frá okkur öllum hér.
#2
15. desember 2009 klukkan 18:57
ummm girnó smirnó

ég var að fletta í gegnum noregsmyndirnar okkar frá því við bjuggum í Skogveien... ohh yndislegur tími

knús á ykkur
#3
16. desember 2009 klukkan 15:24
 
Krummarnir:

500 gr plöntufeiti
500 gr flórsykur
5 msk kakó
400 gr kornflex (þarf að mylja dálítið)
Feiti brædd (ekki hafa hana mjög heita), sykur og kakó þeytt vel samanvið, muldu kornflexi hrært vel útí
Rest kann svo Þórður
#4
16. desember 2009 klukkan 17:07
 
Loftkökur:
1 kg flórsykur
3 stk egg
3 msk kakó
1 tsk hjartasalt
Allt hnoðað vel saman - búnar til lengjur (eða sett í hakkavélamótið) og bakað þar til þurrt við ca 170°C
#5
16. desember 2009 klukkan 17:09
Takk fyrir þetta Edda;)
#6
16. desember 2009 klukkan 21:40

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.