Hvað ætla ég að gera í fyrstu viku í jólafríi???
13. desember 2009 klukkan 21:23
Þetta er búin að vera afskaplega afslöppuð helgi hér á bæ. Skógarferð okkar Þórðar Loga í gær, skokk í morgun og rúntur til Dröbak í dag. Eldaði grískt mousaka í gær og sænska falukorv pylsu í kvöld.
Haukur fór síðan til Osló í kvöld að salta en hér kólnar aftur og það lítur út fyrir snjókomu í lok vikunnar.
Það verða þá kannski hvít jól hér, hver veit.
Næstu viku ætlar Þórður að vera stutt á leikskólanum, mætir seinna en venjulega og sóttur fyrr en venjulega. Ég ætla að nota tímann hér heima og þrífa og hreyfa mig og eftir leikskóla ætlum við mæðginin að baka eitthvað smá, setja saman og skreyta piparkökuhús og snúast í ýmsu jólatengdu.
Þórður byrjar svo í jólafríi eftir þessa viku en Stefán fer í skógarferð með bekknum þann 21. des og litlu jól þann 22. des.
Fimmtudagurinn í þessari viku er dagurinn sem ég hef lengi beðið eftir en þá fer ég á Gardemoen að sækja tvær vinkonur úr Borgarfirðinum sem ætla að eiga með okkur gæðastundir í þrjá daga
Hlakka mikið til og stefni á að elda norkst þessa daga, smakka sænskt skógarglögg, fara í gönguferðir, búðarferðir og....láta lita á mér augabrýrnar!!!!!

http://jolakellan.bloggar.is
Margrét
Líst vel á þetta plan hjá þér :) Góða skemmtun í jólafríinu og með skvísunum tveimur :) Bið að heilsa þeim þegar þær koma! ;)
#1
14. desember 2009 klukkan 00:16
eþ
Þú veist af hverju FALUNkorv eru til - er það ekki?
#2
14. desember 2009 klukkan 20:32
uuu nei, útlitið minnti mig helst á hálspúða sem maður getur keypt í flugvélum.....!!!
#3
14. desember 2009 klukkan 20:58