Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Tvö ný albúm

12. desember 2009 klukkan 18:45
....á myndasíðunni, þau heita:
"Aðventuhittingur í Ås 2009" en við íslensku námsmennirnir og fjölskyldur hittumst á öðrum sunnudegi í aðventu og áttum saman notalega stund, það vantaði reyndar því miður nokkra.
"Skógarferð 12. des 2009" Ég og Þórður Logi fórum í gönguferð út í skóg með nesti í dag en það var það sem drengurinn óskaði eftir að gera með mömmu sinni, loksins þegar hún mátti vera að því að líta upp frá bókalestri Smile

Það er ósköp ljúft að vera komin í jólafrí. Við skelltum okkur til Svíþjóðar í gær, fórum út að borða á ítölskum veitingastað í Strömstad (það er svo jólalegt í Strömstad) og versluðum svo í Nordby storsenter. Var reyndar alveg dauðþreytt en það var kærkomið að gera eitthvað annað en að sitja yfir bókum. Við hittum jólasvein og strákarnir fengu nammi hjá honum. Síðan kom Stekkjastaur við hér í Ås í nótt Wink
 
Rakel
Til lukku með að vera búin með prófin! Gaman að skoða myndirnar hjá þér. Þórður Logi er eitthvað svo fullorðin miðað við í sumar :-)
kv
Rakel
#1
12. desember 2009 klukkan 22:53

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.