Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Fitubolluhugleiðingar

10. desember 2009 klukkan 12:18
Ég var að hugsa af hverju er fólk svo oft í  þeim sporum að vera of feitt...hvað gerðist eiginlega einhversstaðar sem varð til þess? En allt í lagi, fólk tekur sig á, ákveður á einhverjum tímapunkti að nú sé nóg komið og hefur baráttu við fitupúkann, breytir um mataræði og fer að hreyfa sig. Okey, við erum að bæta okkur og allt það en við megum ekki gleyma okkur því við eigum börn og ekki viljum við að þau lendi í sama "vítahring" og við.
Heyrði óm af því í fréttunum eitt kvöldið að hér í Noregi eru börn á aldrinum 11-15 ára verst á sig komin líkamlega í samanburði við önnur lönd. Sko í Noregi notabene - þið getið ímyndað ykkur hvað norðmenn eru sjokkeraðir, þeir sem eru hreyfingarsjúkir....en það virðist vera að þeir séu að gleyma börnunum....hugsa um eigin hreyfingu og matpakka. Koma svo heim á milli vinnu og æfinga og henda pylsum, fiskepinnum eða brauði á borðið fyrir börnin Frown Ekki nógu gott.


Hvað gerum við þegar við ætlum að umbuna börnunum okkar?? kaupum við kannski nammi eða förum við á skyndibitastað?
Umbunum þeim á annan hátt, veljum t.d. nestisferð, förum í sund, keilu, gönguferð - verum saman með börnunum. Ég er ekkert að segja að börn eigi ekki að fá nammi á nammidögum eða neitt svoleiðis heldur verður maður að hugsa aðeins um afleiðingar þess sem maður býður uppá.

Ætla að halda áfram að lesa fyrir próf.
Góðar stundir.

heheh get trúað því að Norðmenn séu sjokkeraðir. En við Íslendingar þurfum líka að huga betur að börnunum okkar, börn hér eru líka að fitna mikið, lélegra fæði í boði og minni hreyfing. En gangi þér vel í prófinu :o)
#1
10. desember 2009 klukkan 12:32
Já.. við notum mat alltof mikið bæði til að umbuna og til að hugga *dæs*

Annars er ég alfarið á móti nammidögum :/ get komið með heila ritgerð um það hehehe :)
#2
10. desember 2009 klukkan 15:45
Þetta er satt hjá þér, við eigum ekki að umbuna í mat. Við höfum öll svo gott aðgengi að mat að við þurfum ekki að nota hann sem umbun, eitthvað sérstakt. Það er ekki eins og þau séu annars að svelta!!!
Ég hef reyndar notað mat sem umbun núna í haust, en það var pínu öðruvísi, við óskar skelltum okkur saman á kaffihús og fengum okkur kökubita og kakó. en það var kannski frekar kósý stundin sem var umbunin í því tilfelli. En það var fyrir rosalega gott námsmat!!

En ég las líka í þessari lotu, prófabloggið þitt. Þetta er pínu athöfn að mæta í próf hjá UMB, einmitt að skrifa með kúlupenna svo það fari öurgglega í gegnum fjölritapappírinn, merkingar og umslög. En bara gaman, mér finnst líka eitt þar sem mætti taka hér og það er númerakerfið. Nýtt númer í hverriprófatíð, það gildir á öll próf í þessari lotu svo það er ekki flókið fyirr nemendann en heldur smá fjarlægð frá kennara. Hann skilar svo inn á númerinu og Þórunn Eddan þeirra sér um að sameina einkunn og nemenda út frá númerum. Ég held nefninlega að glettilega margir kennarar við LbhÍ mismunin nemendum ósjálfrátt.
Lengdur prófatími og þessi krassblöð sem þjóðverjarnir höfðu komið sér upp hérna voru líka til skammar. Aumingjadírkun er ekki af hinu góða og hana nú!!!
#3
11. desember 2009 klukkan 11:54

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.