Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Fyrsti prófdagur í útlöndum ađ kvöldi kominn

09. desember 2009 klukkan 20:03
Jæja þá er það frá, Invetering og ressurskartlegging SKOG205.
Ég vaknaði fyrst klukkan fimm í nótt við símann, Haukur kallaður út til að salta inní Osló. Ég vakti strákana um hálf sjö og svo skutlaði ég Þórði á leiskólann. Þegar ég kom heim aftur var klukkan átta, einn klukkutími í próf. Ég tróð í mig brauðsneið og banana. Hafði ekki lyst á nema einum kaffibolla og svo var ég rokin út.
Mætti svo í TF bygginguna þar sem prófið var og fann stofuna. Það sátu tveri ellilífeyrisþegar yfir. Þau deildu út prófblöðum í þríriti, umslögum og krotblöðum. Sögðu okkur svo hverjar reglurnar væru og svo framvegis. Kennarinn var ekki en hann kíkti við þegar prófið var ný byrjað annars lét hann ekki sjá sig en ég held að það sé venjan.
Prófinu var skipt upp í fjögur verkefni. Ég leysti tvö fyrstu eins og ekkert væri en eyddi samt allt of miklum tíma í þau, lenti í smá vandræðum með þriðja og þegar ég var komin af stað í að skrifa "vurdering" í fjórða og síðasta verkefninu þá var tíminn búinn. Þessir þrír klukkutímar FLUGU áfram.
Þá tók við að merkja arkirnar og umslöginn á réttan hátt, rífa þríritin í sundur og leggja í viðeigandi umslag. Kennarinn fær svo frumritið, sensor fær eitt afrit og ég hélt einu.

Já þetta var fróðlegt, gaman að vera búinn að prófa þetta. Það er eitt sem ég er hugsi yfir og það er gengdarlaus notkun lengds próftíma á Íslandi eða allavega þar sem ég þekki til í Landbúnaðrháskóla Íslands. Þar fá t.d. útlendingar, og það virðist vera óháð hversu lengi þeir hafa verið í landinu, lengdan próftíma......er það endilega réttlátt? Þeim finnst það allavega ekki hér í UMB.

Eftir prófið fór ég til Bríetar í tesopa, lagði mig svo, sótti Þórð og eldaði mat. Gunna kom í mat og er núna með Stefán Snæ í yfirhalningu í stærðfræði - gengur mun betur heldur en að við séum að hjálpa honum.
Ég sit við tölvuna, blogga og spjalla við Sverri frænda í Uppsala á msn Smile - slaka á en á morgun verður langur dagur í lokaundirbúningi fyrir næsta próf sem verður á föstudaginn.
Klukkan 12 á hádegi þann 11. des verð ég búinn í prófum fyrir þessi jól Smile
 
sko sjáðu til ekki nóg með eymngjagæskuna við útlendinga, nú þarf að framleiða próf á 5 mismunandi liti (oftast í einriti hvern lit) - af hverju í fjandanum er þetta fólk ekki með sólgleraugu í réttum litatón. Og svo þurfa sumir að vera EINIR í stofu og og og ....
AAAAAAAAARRRRRRRRRRRRRGGGGGGGGGGGG - ég held ég segi af mér í eymingjagæskusamfélaginu hér BAZZZTA
Ofvirkur, vanvirkur, óvirkur, samvirkur, meðvirkur: Viltu vita samheitið af mínum vörum?
Og hallast að því að ég sé ekki ein um að finnast þetta komið langt út fyrir þénanleg mörk

Ps - ég hef ekkert á móti fötluðum, bara þeim sem VILJA vera það
#1
09. desember 2009 klukkan 20:33
 
Bjarni mágur
Ha ha ha ég fór á bloggið mitt og rifjaði upp hvað ég hafði sagt um mín próf í Noregi: Þrítrit, kúlupennar og fólk að deyja úr elli. Vonandi hefurðu brillerað.

Bestu kveðjur, Bjarni
#2
09. desember 2009 klukkan 20:45

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.