Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Og hvernig er nú svo að búa í Noregi???

07. desember 2009 klukkan 13:26
Margir hafa spurt okkur hvernig við höfum það hér í Noregslandinu og þá hvort við höfum það betur eða verr á Íslandi....tja, það er ekki hægt að svara þessu á einfaldan hátt EN dæmi hver fyrir sig.
Mjólkurlíterinn kostar 12,70.
Klementínurnar kosta 12 kr kílóið.
Rauð epli kosta 15 kr kílóið.
Mjög misjafnt verð á brauðum, það ódýrasta sem ég fann í Rema1000 kostar 4,99 kr og svo er hægt að fá þau upp í 24 kr og trúið mér það er verulegur munur á gæðum...
Stratos súkkulaðistykki 200 gr kostar 24 krónur
Geri mér ekki grein fyrir hvað við eyðum miklu í mat+hreinlætisvörur á mánuði en ég gæti trúað að það sé um 5000 á mánuði.
Frímerki á venjulegt bréf til Íslands 10 kr.
Að senda pakka heim til Íslands sem er undir 9,9 kg kostar 340 kr.
Bensínið kostar 11-12 krónur ótrúlega mikill dagamunur og bensínstöðvamunur.
Við erum í MJÖG ódýru húsnæði borgun 4100 á mánuði
Svo kemur rafmagn ofan á það en það getur farið í 1000 kr á mánuði þegar maður er að kynda mikið (og við búum í 45-50 fm).
Við borgum 2600 kr fyrir leikskólann en hann er reyndar dýr því þetta er einkarekinn náttúruleikskóli, annars væri þetta um 2000 af því við erum gift og annar aðilinn útivinnandi (væri enn minna ef við værum bæði í skóla).
Hef aðeins verið að fylgjast með frjálsa leigumarkaðnum hér í Ås, þú getur leigt einbýlishús á 15 þús-20 þús, eða litla íbúð ca 40 fm á 6 þús. Íbúð á frjálsa sem mundi henta okkur (3 herb+eldhús+bað+stofa) kostar um 10 þús - allt þetta fyrir utan rafmagn aðsjálfsögðu.
Haukur borgar 36% skatta.
Hér er ekkert makasystem eins og heima, þ.e. hann getur ekki fengið mitt skattkort og nýtt persónuafslátt.
Skattarnir leynast víða ef ég fer t.d. til Svíþjóðar þarf ég að borga í tvo vegatolla hvora leið 20 kr í skiptið og það gerir 80 kr!
Einn lestarmiði inn í Osló aðra leið kostar 75 kr og við erum ca 35 mín þangað.
Ég hef áður rætt um heilbrigðissystemið og ætla ekki að ræða það aftur.
Barnabæturnar hér eru góðar, eitthvað um 960 kr með barni, óháð tekjum.
Stefán fer með nesti í skólann og Þórður þarf einnig að hafa með sér nesti í eina máltíð á leikskólanum.
Ég hugsa að við séum með ca 18-19 þúsund til ráðstöfunar eftir skatta og þá eru barnabæturnar inn í þeirri tölu.

Það er mjög gott að vera hér, frábærir útivistarmöguleikar og alltaf hægt að finna sér eitthvað að gera.
Veðrið hér er frábært.
Maður lærir að spara ;)
Við erum auðvitað eðli málsins samkvæmt mikið saman en við værum það eflaust líka á Íslandi ef við ættum enga ættingja og fáa viniLaughing

Við söknum alls heima á vissan hátt en nú erum við hér og þá er eins gott að njóta þess og læra af. Þetta er ómetanlegt í reynslubankann og við verðum miklu sterkari einstaklingar á eftir.
Auðvitað hlökkum við til að flytja heim en að öllu óbreyttu ætlum við ekkert að ákveða neitt eða gera neitt í þeim málum fyrr en eftir rúmt ár. Þangað til er það mottóið að lifa og njóta Laughing
 
Ragnhildur Jónsdóttir
Þetta er miðað við norskar krónur, inte sandt?
Og það x 21,7 = ekkert mjög ódýrt sýnist mér :/ En reynsla verður seint metin til fjár :)
Við hér heima ættum líka að hafa þetta sama mottó.
#1
07. desember 2009 klukkan 13:50
Jú þetta er allt miðað við norskar krónur.
#2
07. desember 2009 klukkan 14:00
 
munið bara að þessi tími er MIKLU stærri í minningunni en öll "venjulegu" árin hér heima
#3
07. desember 2009 klukkan 15:45
 
Thea
...Om det er dyrt i Norge, så er også lønningene hakket høyere enn på Island? Eller hvilket inntrykk har du fått av det?
#4
07. desember 2009 klukkan 19:07
Þessi tími er mjög dýrmætur og þið ættuð að njóta þess að búa í öðru landi. Við hugsum oft um Noregstímann okkar og finnst við heppin að hafa fengið þetta tælifæri.
Síðan vil ég benda þér á frábæra göngu, Inga Lámi kvennagangan sem er haldin í Lillehammer í febrúar held ég. Frábær ganga, margir möguleikar á vegalengdum sem henta hverjum og einum og ótrúleg stemming. Ég fór í þessa göngu, gekk 30 km og fannst æði.
#5
08. desember 2009 klukkan 09:18

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.