það stóð ekki lengi....
06. desember 2009 klukkan 18:35
Snjórinn stoppaði ekki lengi hér í Ås, er næstum farinn og svell yfir öllu og það lýtur út fyrir rigningar þessa viku.
Haukur var að moka í Osló á föstudaginn, náði þó í bláendann af pizzuveislunni. Hann var síðan kallaður út aftur um nóttina og var farin um fimm leytið, var svo kominn rétt um hálf tíu þannig að þá fór ég út í skóla að læra. Ég kom svo heim um hálf fjögur því Haukur varð að rjúka aftur til Osló, því það hafði snjóað mjög mikið um daginn. Ég fór þá með Þórð í leikskólasundið í Son en Stefán var í afmæli. Eftir sundið elduðum við Þórður hakk og settumst svo fyrir framan sjónvarpið með nammi og horfðum á "Mamma Mía" - þetta er það sem Þórður óskar alltaf eftir ef hann má ráða ferðinni
Stefán var kominn ur afmælinu um hálf níu og Haukur var kominn úr mokstrinum um ellefu. Í morgun fór ég svo í skólann klukkan níu og sat þar til rúmlega þrjú. Íslensku námsmennirnir og fjölskyldur hér í Ås hittust svo seinnipartinn, þar sem við belgdum okkur út af ýmsum kræsingum
og jólaandinn sveif yfir vötnum.
Ég ætla nú bara að taka því rólega í kvöld, lít kannski aðeins á námsefni en bara ef ég er í stuði.
Það er að byrja ný norsk framhaldsþáttarröð á NRK1 í kvöld og ég hef áhuga á að fylgjast með.....:
God natt, elskede
Norsk dramaserie. (1:3) Terje Lyngmo er en mislykket musiker som lever av å stemme andres pianoer og er stadig blakk. På impuls rapper han et dyrt videokamera, og når han skal teste det filmer han et drap ... Med Gard Eidsvold, Stig Henrik Hoff, Ingunn Beate Øyen, Marte Engebretsen, Linn Skåber, Øivind Blunck, Kari Simonsen, Elsa Lystad, Anders Mordal og Christian Greger Strøm. Regi: Tor M. Tørstad
Spennó....
Haukur var að moka í Osló á föstudaginn, náði þó í bláendann af pizzuveislunni. Hann var síðan kallaður út aftur um nóttina og var farin um fimm leytið, var svo kominn rétt um hálf tíu þannig að þá fór ég út í skóla að læra. Ég kom svo heim um hálf fjögur því Haukur varð að rjúka aftur til Osló, því það hafði snjóað mjög mikið um daginn. Ég fór þá með Þórð í leikskólasundið í Son en Stefán var í afmæli. Eftir sundið elduðum við Þórður hakk og settumst svo fyrir framan sjónvarpið með nammi og horfðum á "Mamma Mía" - þetta er það sem Þórður óskar alltaf eftir ef hann má ráða ferðinni
Stefán var kominn ur afmælinu um hálf níu og Haukur var kominn úr mokstrinum um ellefu. Í morgun fór ég svo í skólann klukkan níu og sat þar til rúmlega þrjú. Íslensku námsmennirnir og fjölskyldur hér í Ås hittust svo seinnipartinn, þar sem við belgdum okkur út af ýmsum kræsingum
og jólaandinn sveif yfir vötnum.Ég ætla nú bara að taka því rólega í kvöld, lít kannski aðeins á námsefni en bara ef ég er í stuði.