Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Jólasnjór

04. desember 2009 klukkan 07:49
Haukur fór til Osló í gærkvöldi til að salta. Hann gisti svo þar og er núna að moka snjó!!!
Jebb, það byrjaði að snjóa í nótt.
Vanalega hringir klukkan hér um hálf sjö og þá vill maður ná að sofa þangað til en það var ekki í boði í morgun, Þórður Logi var vaknaður uppúr klukkan sex, svona líka hress Laughing við tókum morguninn frekar rólega en svo keyrði ég Þórði á leikskólann og Stefáni í skólann (í leiðinni). Stefán er ekki kominn með nagladekkin á hjólið og því varla þorandi að senda hann á því. Þegar við vorum að keyra í morgun var engin snjókoma, bara hvít mjöll yfir öllu en núna er byrjað að snjóa aftur Smile Þið getið rétt ímyndað ykkur, snjókoma í logni, snjór yfir öllu, snjór hangandi á trjágreinum og svo til að toppa myndina jólaljós hér og þar. Þetta er mjög fallegt get ég sagt ykkur. Nú fer maður að drífa í að kíkja á gönguskíði fyrir alla fjölskylduna og finna til snjóþotur og sleða!
Við vorum einmitt að borga námskeiðið sem Þórður fer á eftir áramót (gönguskíðanámskeiðið) en í bréfi frá Ski foreningen er mælt með skíðum sem þarf að smyrja - þá vitum við það og förum þá líklega öll í þann pakka.
Hitastigið er rétt um -2° og það brakar í snjónum.


Ég ætla að sitja inni við og njóta dásemdanna út um gluggan, próflestur með gæða kaffi með karamellubragði frá Kaffitár. Ætla út í snjóinn þegar strákarnir verða komnir heim.

Pizzugerð í kvöld, eins og alla föstudaga.
Próflestur á morgun með tilbreytingu; handverksmarkaður í landbúnaðarsafninu og jólagrautur í hádeginu. Sund hjá drengjunum seinnipartinn.
Sunnudagur: meiri próflestur og aðventusamvera íslendinganna hér að Åsi seinnipartinn.

Ég ætla bara rétt að vona að það verði ekki mikill mokstur hjá Hauk um helgina því þá hef ég ekki möguleika á að fara út í skóla og þ.a.l. ekki eins gott næði til að lesa.......


Best að nýta tímann svo ég komist út í snjóinn seinnipartinn!
ohh ég sé þetta alveg fyrir mér.
en jólamarkaðurinn í landbúnaðarsafninu er flottur, ég verslaði slatta af jólagjöfum þar, t.d. smjörhúsið. sá eiginlega eftir því að hafa ekki keypt svoleiðis handa mér líka. Það verður bara næst þegar ég fer á jólamarkaðinn!!!
eigðu góða helgi
#1
04. desember 2009 klukkan 09:09
ummm ég finn meira að segja lyktina. Þegar ég var í Lillehammer 2007 þá var alltaf svona veður, stilla, kalt og snjór yfir öllu. Öðruvísi veður en er á Íslandi
Smurningsskíði eru klárlega málið...gangi ykkur vel :o)
#2
04. desember 2009 klukkan 11:04
 
Heiða B Jóhannsdóttir
Mig langar í svona fallegann vetur eins og þú ert með!!! Á Miðvikudaginn snjóaði heilann helling eða um 30 cm jafnfallinn, en svo seinnipartinn fór að hlýna og í gær var bara slabb og í nótt var frost þannig að núna er það bara frosið slabb sem er hér!! Glatað!! og háskólinn tímir ekki að borga fyrir mokstur á bílaplaninu þannig að við þurfum bara að leggja í sköflunum á stæðinu!
En við mæðgur söknum ykkar og það var mjög tómlegt að hafa ykkur ekki í laufabrauðsgerðinni!
Ég er enn að reyna að vinna í Skype-inu en það gengur hægt, Ingólfur ætlar að reynað hjálpa mér að finna myndavél með hátalara og síðan kann ég ekkert á svona dótarí þannig að ég þarf að bíða eftir því að það komi einhver til mín sem kann að setja svona lagað upp ;)
En við verðum mikið í sveitinni um jólinn þannig að við heyrum væntanlega í ykkur þá.
Knús og kossar á allt liðið frá okkur ;)
#3
04. desember 2009 klukkan 13:39

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.