laugardagsrúnturinn
28. nóvember 2009 klukkan 15:35
Jæja í dag var í nógu að snúast. Stefán Snær fór í afmæli í dag en Tim André skólabróðir hans bauð nokkurm strákum með sér í keilu í Ski. Við hin fórum á rúntinn, kláruðum m.a. að kaupa jólagjafir, þannig að þær ættu að fara í póst eftir helgi.
Við fórum í matvörubúð í Ski sem heitir RIMI, þetta er lágvöruverslun, svipuð og Rema 1000. Getið hvað við fundum í frystinum ....... lambalæri - ÍSLENSKT!!!
Keyptum jólaseríu í vikunni og hún var sett á svalahandriðið í dag - aðventan hefst á morgun, þá ætla ég að eyða megninu af deginum í lærdóm. Svo er spurning hvort við skellum okkur í aðventumessu inní Osló seinnipartinn - tja hver veit

Algjör munaður að geta fengið sér íslenskt lamb öðru hvoru :-)