Glæsilegt hjá þér elsku vinkona, það leikur allt í höndunum á þér!
Bendi þér á ráð sem Sigurjón notaði til að þrauka í þrengslunum þegar hann var að læra innan um okkur hin sem vorum að gera allt mögulegt annað á meðan og ekki alltaf hljóðlaust; hann setti á sig heyrnartólin og hlustaði á þægilega músík frekar hátt stillta. Þannig náði hann að útiloka algjörlega allt annað og gat sökkt sér niður í lærdóminn. Þetta gekk ótrúlega vel og þegar ég hugsa til baka þá minnist ég ekki mikilla árekstra og pirrings í þrengslunum og skil eiginlega ekki hvernig okkur gat liðið svona vel í þessari litlu íbúð.
Þröngt mega sáttir sitja (sérstaklega í námi - hehehe).
Bið að heilsa ykkur kæru vinir - knús frá mér.
jebbb
26. nóvember 2009 klukkan 23:31
Ég er ekki alveg að fatta það hvað ég er að gera það gott í náminu hér - skilaði mínu síðasta verkefni í skógmælingakúrsinum í dag og fékk svo póst frá kennaranum mínum núna seinnipartinn þar sem hann sagðist vera búinn að kíkja á verkefnið og hann sagði m.a. "....det var bra jobbet og du får A på den". Þá veit ég það að ég hef A fyrir 40% af einkunn í þeim kúrsi (prófið gildir 60%).
Mér líður eins og smákrakka sem hefur fengið að vita að það er nammidagur, nei eða....
mér líður eins og mér leið þegar ég fékk að vita að ég fengi að fara í flugvél í fyrsta sinn, nei eða....
tja ég get ekki útskýrt þetta en einhvern veginn er allt að ganga upp. Þetta er reyndar bara byrjunin á náminu og ekkert víst að mér eigi eftir að ganga jafn vel í framhaldinu...hver veit
og svo eru prófin eftir 
Það má segja að nú sé ég komin í upplestrarfrí, ég fer í próf 9. og 11. des og þá er komið jólafrí. Þá safna ég kröftum fyrir janúarblokk þar sem ég tek 5 eininga kúrs á þremur vikum, það verður örugglega mjög mikil vinna þar og eins gott að vera einbeitt strax á fyrsta degi.
Það kemur reglulega upp vonleysi út af þessu húsnæði sem við búum í, við erum í ca 45-50 fermetrum og það getur stundum orðið rafmagnað andrúmsloft þegar einn er að læra, annar að horfa á sjónvarp, einn að leika og annar að elda..... Hef stundum kíkt á framboðið á leiguhúsnæði hér á frjálsa markaðnum og þar er leigan fyrir 70 til 90 fermetra um helmingi dýrari (sko ef ég er heppin). Sýnist á öllu að það er ekkert í boði fyrir minna en 9 til 10 þúsund en við leigjum þessa litlu íbúð á 4100. Ætli maður reyni ekki að þrauka þetta eitthvað áfram....
Haukur fór á julebord um daginn með vinnufélögunum, þetta var heljarinnar fjör og sagði hann eftir þetta að það væri enginn munur á íslendingum og norðmönnum þegar kæmi að svona skemmtunum, eða það var allavega hans upplifun. Eftir matinn settust allir við barinn og þjóruðu bjórinn sinn
Það er eitt sem mér þætti vænt um svona af og til...en það er fá smá "kvitt" á greinilega digga lesendur, tja ca 25 til 30 sem líta inn á dag. Veit um nokkra þeirra en það væri gaman að vita hverjir hinir eru
(forvitnisgenið mitt) 

Þórunn Harðar
#2
27. nóvember 2009 klukkan 00:01
Hrikalega ertu dugleg :) Þetta er ekkert sem kemur á óvart, þ.e. fyrir okkur hin! Þú ákvaðst bara að vera skipulögð og taka námið föstum tökum og það er bara að skila sér :) Sammála Önnu Lísu, þú ert snillingur :)
Kíp öpp ðe gúdd vörk vúmman! ;)
Knús og sakn... :) Magga og co
P.S. Er ekki einhver aðstaða þarna sem þú getur farið í þegar þú ert að læra? Þá getur þú einbeitt þér enn betur að þessu og ert "heima" þegar þú ert komin heim... Bara pæling...

#3
27. nóvember 2009 klukkan 00:04
Sigga Júlla
Jú jú, það er aðstaða í skólanum en svo freistast maður stundum til að líta aðeins í bækur eftir að heim er komið en svo er það nú Stefán Snær sem þarf að læra heima líka sko.....
#4
27. nóvember 2009 klukkan 06:11
Hafdís
Til hamingju með góðan árangur hingað til. Ég vona að það gangi jafnvel í prófunum.
#5
27. nóvember 2009 klukkan 08:26
Tedda
Elsku vinkona.... samgleðst þér svo innilega. En verð að segja að þetta kemur mér sko ekki á óvart.... þú ert hörkutól og þið öll !! Allar þessar góðu fréttir af ykkur gleðja mitt hjarta og því reynist auðveldara að "sætta sig við" að þið séuð svona langt í burtu :) ... en stundum er gott að tíminn er fljótur að líða - 2 ár verða fokin áður en maður veit af ;) ´
Knús og kossar til ykkar.
Knús og kossar til ykkar.
#6
27. nóvember 2009 klukkan 08:29
snilli ertu Sigga, auðvitað rúllar þú þessu upp eins og öðru sem þú tekur þér fyrir hendur.
ég kíkti inn í dag en hef ekki verið héna þónokkuð lengi svo ég las nokkrar færslur og mig langar að kommenta á jólakorta pistilinn. ég er nefninlega með jólakortalista á posturinn.is það er ókeipis þjónusta. mjög sniðug

#7
27. nóvember 2009 klukkan 09:04
Sú ráðagóða
Hæ
Frábært hjá þér og ég skil ekki hvað þú ert alltaf hissa á eigin getu. :)
Eitt sem mig langar að nefna, við Silla erum á námskeiði sem heitir pmt/smt sem er foreldra- og skólafærni þ.e. atferlismótandi hegðun. Þar er einmitt talað mikið um að hrósa og passa að eyðileggja ekki hrósið með neikvæðu í lokin. Þú ert himin sæl með A (og mátt og átt að vera það) en eyðileggur svo hrósið þitt með því að segja að það sé ekki víst að þér gangi jafnvel í framhaldinu. Auðvitað gegnur það vel hvort sem þú færð A - B eða C, vegna þess að þú gerir alltaf þitt besta og hefur alltaf gert. Og hana nú.
Kveðja mamma
p.s. ég held að ég sé að fá magasár af spenningi eftir að 20. des komi.

#8
27. nóvember 2009 klukkan 09:24
Kvitt, kvitt, kvitt.. Svo sammála... oft margir inni á minni síðu og ég veit ekkert hverjir og maður er bara forvitinn....
Glæsilegt hjá þér... Bra jobbett... Skil alveg hvernig þér líður.. Þegar ég náði fyrsta prófinu við KU og var efst í bekknum í kúrs á dönsku... Þá var ég glöð... Brosið náði hringinn í marga daga hjá mér.....
Bestu kveðjur úr fallegu frostveðri á Hvanneyri
Guðrún B.

#9
27. nóvember 2009 klukkan 11:06
Dísa Gests
Glæsilegt hjá þér stelpa. Vissi að þetta gengi vel. Keyptu bara eyrnatappa í alla fjölskylduna og settu hana í megrun. Þetta reddast svo allt á næstunni.
#10
27. nóvember 2009 klukkan 11:40
Til hamingju með glæsilegan árangur ... nú espist ég uppi í að reyna fá A fyrir allavega eitthvað af þeim verkefnum sem ég er að bauka við í Husdyrfag.
#11
27. nóvember 2009 klukkan 12:45
Innilegar hamingjuóskir með frábæran árangur, þú stendur þig rosalega vel. Þú átt eftir að fá smávegis sjokk þegar þú mætir í fyrstu prófin, kannski ekki vegna erfiðleikastigs, en vegna þess hve asnalegt allt er í kring um það, eða allavega mikið öðruvísi en það sem við höfum verið að venjast á Hvanneyri. Átt að skila mörgum eintökum af prófinu og allt voðalega formlegt eitthvað... en þú átt eftir að rúlla þeim upp eins og öllu öðru sem þú tekur þér fyrir hendur. Gangi þér áframhaldandi vel.
Kveðjur úr snjókomunni í Reykjavík, Elin
Kveðjur úr snjókomunni í Reykjavík, Elin
#12
27. nóvember 2009 klukkan 13:03
Haha var að lesa sjúkrasöguna, kannast aðeins sjálf við þetta sjúkrasystem í Noregi og líkaði alls ekki vel!
Annars til hamingju með flottan námsárangur
Annars til hamingju með flottan námsárangur
#13
27. nóvember 2009 klukkan 14:00
Tóta
Frábær námsárangur þrátt fyrir mikil þrengsli. Púff, ég skil pirringinn, því ég er þarf "mitt speis" en þetta er greinilega ekki að trufla námsárangurinn mín kæra:)
Sendi baráttukveðjur og styð Þórunni í tillögunni með headfón og tónlist ég á fullt af notalegri ef þig vantar;)
Sendi baráttukveðjur og styð Þórunni í tillögunni með headfón og tónlist ég á fullt af notalegri ef þig vantar;)
#14
30. nóvember 2009 klukkan 02:50
Kvitt kvitt, ég datt hér inn í gegnum aðra bloggsíðu þar sem hreyfing og hollusta var til umræðu. Ég er eins og þú að rembast við að hlaupa og lfa heilsusamlegu lífi. Einnig bjó ég um tíma í Lillehammer þegar maðurinn minn fór í námsleyfi, og þá var búið þröngt svo ég upplifi ýmislegt sameiginlegt í gegnum bloggið þitt. Að öðru leyti þekki ég þig ekkert en hef gaman af að lesa um árangur fólks sem nær árangri til betra lífs. Gangi þér vel :o)
#15
30. nóvember 2009 klukkan 15:51
Knús og kossar