hugvekja dagsins
18. nóvember 2009 klukkan 21:18
Eftir að svínaflensubólusetningar hófust hér í Noregi höfum við rætt það mikið hér á heimilinu hvort við eigum að fara og þyggja sprautu eða hvort við ættum bara að leifa náttúrunni að hafa sinn gang og sleppa öllum inngripum. Það er skemmst frá því að segja að við höfum farið sautján hringi og að lokum komumst við að niðurstöðu, jú í bólusetningu færum við. Fengum bréf frá leikskólanum í vikunni þar sem við vorum látin vita að boðið yrði upp á bólusetningu í dag milli 14 og 19 fyrir fjölskyldur barna undir 6 mán, fyrir óléttar konur og fjölskyldur þeirra og fyrir leikskólabörn og þeirra fjölskyldur. Það voru engar tímapantanir eða neitt svoleiðis, maður mætti bara. Við borguðum 50 kr á manninn, fengum eyðublöð og "kolap" (miða með númeri á) og var sagt að við skyldum bíða. Mér leyst nú ekkert á þetta því þarna var fullt af fólki. Við vorum nr 98 og það var verið að kalla inn fólk með númer 61-65 þegar við komum, við biðum tja í 20-30 mín. Við fylltum út eyðublöðin á meðan við biðum, fengum okkur smá snarl en hægt var að kaupa jógúrt, vöfflur og ýmislegt annað á meðan maður beið. Tíminn leið hratt. Svo voru númer 96-100 kölluð upp og við fórum inn. Þetta gekk hratt og vel fyrir sig - allir stóðu sig með stakri prýði og hafði hjúkkan það á orði hvað drengirnir stæðu sig vel. Þegar þetta var afstaðið fórum við fram og biðum á kaffiteríunni í 20 mínútur til öryggis ef vera skildi að eitthvert okkar sýndi neikvæð viðbrögð. Eftir það var brunað burt, ég verslaði í Kiwi á meðan Haukur og strákarnir náðu í Kebab sem er vinsælasti skyndibitinn í fjölskyldunni þessi misserin.
Þetta var reyndar sjokkerandi dagur í vinnunni hjá Hauk en verktaki sem var að vinna í ákveðnu verkefni í haust með þeim, lenti í vinnuslysi fyrir hádegi og dó. Þetta gerðist í stóru húsnæði sem Bauhaus er að byggja - hræðilega sorglegt.
Talandi um Bauhaus, við höfum sagt að það sé eitt sem bendir til að Noregur sé á niðurleið efnahagslega, Bauhaus byggir hér!!! Nei án gríns þá hafa margir sagt að hættumerkin séu víða hér, ég er ekki hagfræðingur eða sérfræðingur á þessu sviði og kann ekki að útskýra....sorry. En það er eitt á hreinu, norðmenn eru ekki eins heilbrigðir eins og við höfum alltaf haldið ó nei það hefur mikið breyst hér síðustu 3-5 árin segja kunnugir en einkaneysla hefur aukist verulega. Hér má segja að ríki nokkurs konar 2007 stemming
Annað hættumerki, Elko hlýtur að fara á hausinn bráðlega - John Cleese leikur í auglýsingum fyrir þá....

Sigga Júlla
Já ég held að þrátt fyrir allt þá hafi íslendingar það fjandi gott;) Bíddu bara eftir bloggfærslu sem ég mun skrifa fljótlega um sjúkrasögu Stefáns hér úti og seinaganginn í þessu heilbrigðissystemi. Hef verið svo stressuð og reið yfir því að ég hef ekki verið í standi til að blogga um það en það kemur.
#2
19. nóvember 2009 klukkan 13:23
Þórunn Harðar
Já svona er þetta í Noregi - sumt er dýrt - sumt er ódýrt og sumt er gott á meðan annað er slæmt. Grasið er ekki alltaf grænna hinum megin og svo hafa allir gott af því að læra að meta það sem almenningur hér á Íslandi tekur sem sjálfsagðan hlut. Við duttum alveg í þá gryfju þegar við fluttum út að finna endalausa galla á norska kerfinu og vera endalaust að bera Noreg við Ísland en smátt og smátt lærðum við að meta þeirra kerfi og hefðir, auk þess sem við öðluðumst nýja sýn á landið okkar góða.
Ég hef líka komist að sömu niðurstöðu og þið með svínaflensubólusetninguna og er búin að panta tíma fyrir fjölskylduna. Krossa bara fingur að ég fái ekki þennan fjanda í millitíðinni.
Annars allt gott frá okkur - verst hvað myrkrið úti er svart þessa dagana, ég þrái SNJÓ!!
Saknaðarkveðjur ;-)

#3
19. nóvember 2009 klukkan 19:00
Þau eru alveg ömurleg þessi vinnuslys. Skilaðu kveðju til Hauks.
Ég var ánægð að heyra að þið fóruð í flensusprautuna, var búin að vera með áhyggjur af þér þar sem þú færð svo erfið kvef. Hér í kastljósinu í kvöld var Steingrímur að boða skattahækkanir og ég segi nú fyrir mig að heldur vil ég borga aðeins meiri skatta og fá góða læknisþjónustu þegar maður þarf á henni að halda, en hér á landi fá allir flensusprautuna ókeypis.
Kveðja mamma