Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

pósturinn minnir á sig

17. nóvember 2009 klukkan 16:45
Fremur óþægilegt að í gær kom auglýsing í sjónvarpinu þar sem fólk var minnt á að setja jólakort og jólapakka í póst í síðasta lagi 16. desember. Jamm einmitt, það er nægur tími - fjórar vikur EN í millitíðinni eru próf Embarassed
Þá gerði ég mér grein fyrir því að allt sem tengist jólakortum (listi yfir þá sem fá kort) er ekki hér......þannig að sennilega verða jólakortin frá okkur í ár eitthvað fá - nema ég fái andann yfir mig og finni út úr þessu öllu, þ.e. finna kort, skrifa á þau, finna heimilisföng og það sem skiptir auðvitað mestu máli að finna út HVERJIR ÞAÐ ERU SEM FÁ KORT!!! Þetta hefur hingað til ekki skipt Hauk miklu máli enda vill hann græja jólin á Þorláksmessu en kannski er hann til í að skoða þetta með smá fyrirvara núna - við þessar aðstæðurSmile

En hvað um það, jólin koma, hvort sem við sendum jólakort, gefum jólagjafir, bökum eða þrífum. Enda eru það allt hlutir sem skipta litlu máli.
Það er þrennt á hreinu fyrir þessi jól:
Við erum allavega búin að tryggja okkur eintak af einni jólabókinni, hún kemur væntanlega til okkar um mánaðarmótin og þá hefjast húslestrar hér í kotinu Smile lestur + samvera = góðar stundir
Við stefnum á að fara á aðventutónleika allra kóranna við UMB (hér eru 4 háskólakórar) = hátíðlegt
Mamma og pabbi koma um jólin, væntanlega með eitthvað sem hægt er að nærast á = við sveltum ekki

Annars er fátt annað sem minnir á jólin hér - fyrir utan þessa auglýsingu frá póstinum. Hér er næstum því 10 stiga hiti og rignir af og til. Sá reyndar jóladót á loppemarket á föstudaginn og jólaljós utan á VIKA bíóinu í Osló um helgina.........

Verð í lokin að minnast á eitt sem mér þykir sorglegt en jafnframt hlýlegt. Allir nemendur við institutið mitt (INA) fengu tölvupóst í gær frá deildarforsetanum þar sem hann tilkynnti um dauðsfall. Einn nemandi í skogfag dó og það var haldin minningarstund í einum fyrirlestarsalnum í gær. Þetta minnti mig á það að þó ég sé í 3000 manna skóla þá er maður ekki bara númer á blaði, maður er einstaklingur með nafn Smile já, mér þótti þetta persónulegt. Komst svo að því í gær að þessi nemandi hafði verið skráður í kúrs sem ég er í og ég var í vandræðum því ég kom þessum nemanda ekki fyrir mig, hver var hann? skildi það vera þessi eða hinn? hugsaði ég. Svo í morgun þá kom í ljós að viðkomandi hafði ekkert mætt, nema e.t.v. fyrst í haust.
Á maður að kommenta ef maður vill fá kort ?? :) Ég vil að minnsta kosti halda áfram að fá kort frá ykkur, tala nú ekki um fyrst maður getur ekki fylgst með vexti og þroska drengjanna ykkar (og ykkar allra :þ) svona "feis tú feis"...meira svona "feisbúkk tú feisbúkk"...

Leiðinlegt að heyra með samnemanda þinn...fallega gert af skólanum að hafa minningarstund um hann, ekki allir skólar sem hefðu gert það.

En já...njótið ykkar bara í ræmur þarna úti um jólin, sem aðra daga ársins. Okkar reynsla er að það er frábært að vera bara við sjálf þarna úti...ekkert flakk á manni, nema ef mann sjálfum skyldi langa til þess. Ofboðslega afslappandi og gott. Ég er alls ekki að segja að það sé leiðinlegt að fara í jólaboð, mér finnst t.d. rosalega gaman að hitta alla í fjölskyldunni, en að prufa þetta, að halda sín jól á heimili sínu erlendis í algjörum rólegheitum, er æði...þótt venjurnar að heiman séu fínar.
Úff hvað þetta var ruglingslegt ;)

Kv. Margrét
#1
17. nóvember 2009 klukkan 17:24

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.