Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Eitt blogg af skildurækni

14. nóvember 2009 klukkan 19:08
Það er í nógu að snúast hjá okkur hér þessa dagana. Auðvitað skólinn og vinna á dagvinnutíma, hreyfing, lestur, heimilisstúss og eldamennska á kvöldin.
Einhvern veginn þá líða dagarnir hratt og alltaf nóg að gera, það gerist allavega mjög sjaldan í mínu tilfelli að ég sitji hér og horfi út í loftið og viti ekkert hvað ég á að gera.

Þegar ég var búin í skólanum í gær og kom heim þá fórum við Stefán á loppemarket, skoðuðum allskonar jóladót sem gladdi augað og gekk ég út með einn trékertastjaka, rauðan með fjórum örmum sem kostaði heilar 10 krónur, einnig splæsti ég í eldgamalt jólakökubox á 40 krónur!! Bara eyðslusöm Money mouth
Dagurinn í dag er búinn að vera ansi drjúgur, hér var hvít jörð í morgun. Þórður var úti að leika meira og minna fram yfir hádegi með Amý og Önnu Maríu. Við Bríet fórum út að ganga, síðan til Osló í bútasaumsbúð, komum heim og fórum í leikskólasund með Þórð og Amý, eldaði kvöldmat og núna erum við á leið í vöfflukaffi!!
Haukur var ræstur út í gærkvöldi í mokstur inní Osló og vann til hálf fjögur í nótt og var í róleghetum hér heima í dag, Stefán var bara í rólegheitum hér í dag einnig en á morgun er stefnt á sundferð til Askim- sjá nánar hér þarnakostar sundmiðinn hvítuna úr augunum Tongue out
var að lesa nokkur blogg, hef lítið kíkt við undnafarið.
þú stendur þig rosalega vel í hreyfingunni, bara flott.
veðrið í Ås er æði, ég er sko sammála því.
sundi í Askim, geggjða, munið bara eftir nestinu. Það er nauðgsynlegt að taka smá pásu í öllu buslinu og fá sér smá í gogginn og halda svo áfram, nýta sundmiðann sem mest!!
góða skemmtun
#1
15. nóvember 2009 klukkan 11:32
 
Þórunn Harðar
Já það er í nógu að snúast á fleiri bæjum - gærdagurinn var tekinn með trompi í afmælum, fyrst þrefalt barnaafmæli hjá Eyfa og Möggu og svo fertugsafmæli í Reykjavík í grúví bakhúsi þar sem hljómsveitin Baggalútur, Hamrahlíðarkórinn og Mótettukórinn sá um tónlistina! Ekkert smá frábært - svo dagurinn í dag fer í pínu afslöppun og stúss heima við. Bara verst að þið getið ekki snætt með okkur lambahrygginn í kvöld Sigga mín . . .
Annars hefur veðurblíðan leikið við okkur Hvanneyringa í haust og nú er bara beðið eftir snjónum enda er farið að dimma ansi mikið.
Skemmtið ykkur vel í Askim-badet - ég fór í Bláa lónið um daginn og þar lætur maður handlegginn með að auki því sundmiðinn kostar um 5000 krónur!
Knús í kotið þitt frá okkur öllum hér :-)
#2
15. nóvember 2009 klukkan 14:53

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.