Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Veit það tekst!!!

10. nóvember 2009 klukkan 22:59
Það tókst eiginlega í gær, að hlaupa 5 km, það var reyndar með smá labbi þannig að betur má ef duga skal Cool
Þetta var eiginlega þannig að við Bríet fórum út með það að markmiðið að hlaupa 4 km, við byrjuðum á því að labba svona ca 600-800 metra og hlupum svo af stað. Ég hljóp þetta hægt og fór í örfá skipti niður á göngu, þegar 3 km voru komnir var ákveðið að fara 2 km í viðbót. Þvílík vellíðan og ánægja á eftir, mér tókst það en ákvað að skrá samt ekki að ég hafi náð markmiðinu því ég vil hlaupa þess 5 km án þess að fara niður á labb í eina mínútu. Í heildina fórum við um 6 km því við gengum fyrir og eftir hlaup smá spotta.
Hlaupafrí í dag en stefni á hlaup annaðkvöld. Morgundagurinn verður undirlagður hjá mér í fyrirlestrum, fundi út af mastersverkefni, lærdómi og hópavinnu EN ég ætla samt út að hlaupa annað kvöld.
..........og það styttist í próf..........

Hér er alltaf jafn frábært veður, svei mér þá maður gæti vanist þessu.....hvaða staður á Íslandi gæti komist næst þessu???
 
Hvanneyri, þessa stundina er hér hauststilla svo mikil að það er algjört andvaraleysi - jafnvel gallharður Eyfirðingur viðurkenndi að svona gott gerðist tæpast þar - sólin rétt að hverfa í jólafríið og bara ÆÐI
#1
11. nóvember 2009 klukkan 13:30
 
Sú ráðagóða
Hér í Skagafirði. Það er búin að vera hér nánast sumarblíða undanfarna dag. :)
Hafið það gott
Kveðja mamma
#2
11. nóvember 2009 klukkan 21:26
Sammála fyrri ræðumanni (sá að það voru komnar 2 athugasemdir en sé bara aðra þeirra)...búið að vera frábært veður á eyrinni núna...maður kann líka svo miklu betur að meta það þegar það gerist svona sjaldan :D

Frábært hvað þér gengur vel með hlaupin :) Þú nærð þessu sko fyrir jól með þessu áframhaldi :)

Bæ ðe vei...þetta var geggjaður listi þarna sem ég kíkti á á síðunni sem þú sendir mér í gær :D Maður varð bara veikur!!

Knús í kotið :)
#3
11. nóvember 2009 klukkan 23:25

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.