Gestagangur
09. nóvember 2009 klukkan 13:03
Nú erum við búin að búa hér í rúma þrjá mánuði, á þessum þremur mánuðum erum við búin að fá tvær heimsóknir frá Íslandi. Sú fyrri var fljótlega eftir að við komum en það voru Berglind Óðins og fjölskylda og svo fyrir mánuði síðan komu Palli og Torfi.
Þann 17. des koma svo tvær skutlur sem unnu í sama húsi og ég á Hvanneyri, þær Björk og Þórhildur og þegar þær fara þann 20. des lenda mamma og pabbi og munu þau vera hjá okkur í viku.
Árið 2010 lítur vel út. Halla Kjartans ætlar að koma í mars, búin að panta miða og allt. Síðan kemur önnur vinkona þann 24. júní (ætla nú að leyfa henni sjálfri að tilkynna þessa ferð) og mun hún dvelja í 10 daga. Það passar vel því síðasti dagurinn minn í júníblokk (kúrs í júní) er 24. júní
En þetta er það sem er staðfest, fólk búið að bóka flugmiða og svona
JEIJ!!!

JEIJ!!!http://jolakellan.bloggar.is
Margrét
Frábært :) Alltaf gaman að fá gesti :)
#1
09. nóvember 2009 klukkan 18:31