Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Laugardagsblogg

07. nóvember 2009 klukkan 08:47
Jæja þá er kominn laugardagurinn 7. nóvember, heima á Íslandi er verið að selja "Neyðarkallinn" og það minnir mig á örlagaríkan dag fyrir nokkrum árum í lífi einnar vinkonu minnar, Elín Bergs ég sendi þér kveðju hér með.

Hérna er álagið að aukast en ég er að vinna í hópaverkefni sem við eigum að skila þann 16. og kynna þann 19. nóv en við erum búin að setja okkur það markmið að vera alveg búin með verkefnið í þessari viku. Held það hafist alveg Wink
Jafnframt því að álagið sé að aukast hjá mér þá eykst álagið hjá Hauk en það er víst farið að snjóa í "efstu" byggðum Olsóar sem þýðir að Haukur fór t.d. í morgun að moka.

Haukur kom heim í gærkvöldi úr veiðiferð en þeir fóru á fimmtudagskvöldið nokkrir íslendingar til Svíþjóðar og keyrðu að Vatteren (langa mjóa vatnið) í gær veiddu þeir svo, fóru á bát með stangir með leiðsögumann og allt. Nema hvað að það litla sem ég veit um þetta er að þeir voru ekki góðir í maganum (fyrst um sinn allavega) en það gæti hugsanlega skrifast á bjórsmökkun sem þeir fóru í kvöldið áður. Þeir höfðu semsagt komið við í Strömstad og verslað ýmsar bjórtegundir sem þeir höfðu ekki smakkað fyrr og morgunmaturinn á föstudagsmorgninum var egg og beikon...þannig að sú blanda var líklega ekki alveg það besta þegar fyrir lá að fara út á risastórt vatn (sem er næstum haf) í roki!
Þeir veiddu einn fisk.
Sko samtals ekki hver og einn.

Á meðan Haukur var í þessari kallaferð í Svíþjóð, vorum við mæðginin bara í rólegheitum hér á fimmtudagskvöldið, hingað kom ein norsk stelpa sem ég er í hóp með og borðaði með okkur middag og við fórum aðeins yfir stöðuna á verkefninu okkar og spjölluðum um hitt og þetta, hef minnst á hana áður hún heitir Runa og er frá Elverum. Hún er mikið jólabarn og spyr mikið út íslenskar jólahefðir - veit einhver hvar maður getur fundið lýsingar á íslensku jólasveinunum, grýlu og leppalúða á norsku??

Seinna um kvöldið kom svo Hrafnhildur (Ragnar var í veiðiferðinni) með prjónana sína og við sátum og prjónuðum. Það vildi svo skemmtilega til að Halla Kjartans hringdi í tölvusímann og gáðum við spjallað við hana báðar, það var mjög gaman og eins og Halla var áður búin að segja þá var hún að tala um að hún stefnid á Noregsferð á næsta ári. Nema hvað að við hvöttum hana til dáða að fara bara í það að kaupa miða og með það kvöddumst við. Eftir 10 mínútur hringdi síminn aftur og þá var Halla að spáí hvort 6.-21. mars væri hentugur....hún var sem sagt ekkert að hika og pantaði flug og verður sennielga eina viku hjá systrum sínum sem búa í Telemark og svo seinni vikuna hjá okkur hér í ÅsWink Vona að það verði gönguskíðafæri Laughingef ekki þá förum við bara eitthvert þar sem er snjórLaughing

Í gær fórum við grasekkjurnar til Svíþjóðar og gerðum innkaup í Strömstad og Nordby storsenter. Ég keypti mér skó og íþróttaföt á Stefán (stuttbuxur, bol og sundskýlu), einnig verslaði ég nokkrar jólagjafir og mat.
Dagurinn var svo toppaður hér í gærkvöldi með pizzu og Mexíkósúpu.

Framundan eru hlaup en við stefnum á 8-9 km í dag hlaup/ganga og einnig á morgun. Það styttist í daginn þegar ég mun hlaupa 5 km hlaupið (án þess að stoppa eða fara niður á labb í eina mínútu), 10 dagar til stefnu.

Læt þetta duga í bili, njótið helgarinnar Wink
http://no.wikipedia.org/wiki/Jólasveinn
Annars googlaði ég bara íslensku jólasveinarnir og þá komu nokkrar síður, fór inn á wikipedia síðuna og þar stendur "á öðrum tungumálum" neðst til vinstri, þá kom þessi síða uop. Örugglega hægt að finna eitthvað meira;)
Gangi ykkur vel með verkefnið, knús Maja
#1
07. nóvember 2009 klukkan 09:13
Og annað, í minni tölvu get stendur "translate this page" fyrir aftan alla linkana þegar ég opna google.com, ýtti á það og þá vel ég bara það tungumál sem ég vil þýða yfir á og komið fullt af fróðleik á hvaða tungumáli sem er:D
#2
07. nóvember 2009 klukkan 09:17
 
Sigga Júlla
Takk Maja;)
#3
07. nóvember 2009 klukkan 11:39

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.