Fengum pakka í dag....
03. nóvember 2009 klukkan 14:46
....og í honum var léttlopi, lakkrís og kaffi frá Kaffitár
Hjartans þakkir kæra Tedda!! Nú get ég kannski fitjað uppá hauskúpupeysunni í kvöld, á sama tíma og saumókerlurnar mínar á Hvanneyri hittast 
Ég er að klára verkefni 2 í skógmælingum, skila á morgun - geri mér nú ekki vonir um A, væri sátt með C og allt hærra en það er plús.
Stefán Snær bakar brownies og Þórður Logi pantaði kjöthakk í kvöldmatinn.
Haukur græðir á þessu öllu saman
.....eeee það er kannski rétt að taka það fram að við borðum samt öll ég er ekki meina að við hin sveltum, nei, nei, það er fjarri lagi 
Hér er svo mottó dagsins í dag, sem er gott leiðarljós fyrir alla - alla daga:
Betra er að baða sig í dásemdum lífsins en að sökkva sér í leiðindi þess.

Gangi þér vel með hauskúpupeysuna...ef Þórður Logi verður enn á sjóræningjatímabilinu þegar hann verður 5 ára þá eru snilldar sjóræningjakökur inni á mommur.is :D
Kv. Magga