Slyddusnjór í Ås
02. nóvember 2009 klukkan 15:47
Það snjóaði hér í dag en það breyttist í rigningu núna seinnipartinn. Lét það ekki aftra mér frá skokki enda er ekki rok sem var nú helsta ástæða þess að maður nenti ekki út að skokka á Hvanneyri 
Haukur fer kannski í nótt að moka eða salta göngustíga - á að fá símhringingu um klukkan 21 í kvöld ef af verður. Það hefur einu sinni verið þörf á söltun þetta haustið en það var í síðustu viku.
Lítið að frétta nema nóg að gera í skólanum.
Nokkrir karlar hér, þar á meðal Haukur ætla í veiðiferð í lok vikunnar. Þeir ætla að veiða í stóra vatninu í Svíþjóð (get ekki munað hvort það er Vaneren eða Vatteren) fara seinnipartinn á fimmtudag og koma seint á föstudagskvöld.