Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Ţađ er hafiđ!!!!

01. nóvember 2009 klukkan 15:19
Sjóræningjatímabilið í lífi Þórðar Loga er hafið!!!! Veit ekki hvort það komi til með að endast og svo taki riddaratímabilið við eða hvort hann sleppi alveg riddaratímabilinu. Stefán Snær var nefnilega lengi á riddaratímabilinu en minnist ekki sjóræningjatímabils. Þórður á fullt af trékubbum, bæði sem hann hefur fengið í gegn um tíðina og eins er hann með trékubba frá því að ég var lítil en þá notar hann til að kubba sjóræningjaskipCool Heppilegt að ég á von á léttlopa í hauskúpupeysu á sjóræningjadrenginnLaughing
Annars er Þórður líkur bróður sínum með það að ef við förum í göngutúr þá finnur hann ótrúlegt magn af allskonar verðmætum varningi sem hann verður að taka með heim eins og t.d. trjágreinar sem eru notaðar til að veiða og berjast við ýmis dýr (elgi, rádýr og hreindýr!!!).

 
Rakel
Sjóræningjatímabilið er frábært! Þú mátt búast við því að það vari lengi. Á mínum bæ er það enn í gangi því guttarnir eru farnir að skipuleggja næsta öskudagsævintýri og sjóræningjabúningar eru enn efst á óskalistanum.
Bestu kveðjur úr snjóföl á Akureyri
#1
03. nóvember 2009 klukkan 10:26

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.