Haukur á kóræfingu... syngur þessi kór nokkuð opinberlega.
Ég er á því að fólk eigi ekki að ýta undir óvinsældir okkar íslendinga á erlendri grundu, sér í lagi ef hægt er að komast hjá því á einfaldan hátt.
Bið að heilsa í kotið
af innkaupum.....
29. október 2009 klukkan 20:10
Gerðist eyðslusöm í dag og fór til Ski. Keypti útigalla á Þórð ásamt því að versla þunnar flísbuxur og peysu í stíl og sokka fyrir hann. Lukt á hjólið, ennisljós og vettlinga fyrir Stefán Snæ (samtals 1200 kr norskar). Og svo það sem verður að borga sig með tíð og tíma: Hlýjar hlaupabuxur (þykkri), eyrnaband og fingravettlinga á mig. Þetta voru nokkrir peningar get ég sagt ykkur eða 977 kr norskar. Hef unnið í því að sannfæra mig um hagkvæmni þessara kaupa en ég er allavega ekki að borga mánaðargjald í líkamsrækt á meðan ég sinni hlaupunum......og svo er ég búin að fara og prófa útbúnaðinn og þetta svínvirkar, það er nefnilega að verða svolítið kalt og þess vegna mikilvægt að vera í réttum fatnaði fyrir aðstæðurnar. Sálfræðitrikkið er semsagt að eftir því sem ég fer oftar að hlaupa verður hlaupatúrinn ódýrari 
Keypti ekkert handa Hauk enda verður hann að velja sinn útbúnað sjálfur en hann sást í mýflugumynd hér heima áðan, þurfti nefnilega að rjúka á KÓRÆFINGU í Osló (íslenski kirkjukórinn)!!!
Legg ekki meira á ykkur kæru lesendur AMEN!

Keypti ekkert handa Hauk enda verður hann að velja sinn útbúnað sjálfur en hann sást í mýflugumynd hér heima áðan, þurfti nefnilega að rjúka á KÓRÆFINGU í Osló (íslenski kirkjukórinn)!!!
Legg ekki meira á ykkur kæru lesendur AMEN!
Edda
#2
29. október 2009 klukkan 21:44
Styð þig heilshugar í þessum innkaupum þínum. Hef lent í því oft að ef maður kaupir ódýrari hlut þá endist hann mun skemur og maður þarf bara að kaupa annan fljótlega aftur. Þetta á þvílíkt eftir að borga sig.
Flott hjá Hauki að skella sér í kór :) Hann tekur sig án efa vel út :)
Kv. Magga
Flott hjá Hauki að skella sér í kór :) Hann tekur sig án efa vel út :)
Kv. Magga
#3
30. október 2009 klukkan 09:18
Sigurjón E.
Kemur ekki á óvart að þú kaupir þér græjur til að verða fljótari að hlaupa þar sem miklar líkur eru á því að þú þurfir á því að halda þegar karlinn fer að æfa sig heima! Er hann virkilega búinn að fara í söngpróf, því víða hafa mér borist til eyrna fegurri hljóð en úr Hauki. Guð blessi hinn íslenska söfnuð í Osló.
kv. Sigurjón :-)
kv. Sigurjón :-)
#4
30. október 2009 klukkan 18:19
Bjarni
Já sæl og blessuð. Verslunarferð til Ski... það klikkar sko ekki enda þar hægt að fá þar gott kebab sem var fastur liður hjá mér. En verð á öllu alveg hreint brjálað. Gangi þér vel í hlaupunum.
Bestu kveðjur, Bjarni
Bestu kveðjur, Bjarni
#5
30. október 2009 klukkan 20:42
knús
Elín