af kílóum, mat og hreyfingu!
27. október 2009 klukkan 12:08
Þann 8. september sl skrifaði ég bloggfærslu sem hét "Hver vill vera memm" - hvet ykkur sem hafið áhuga á fara í átak til að lesa hana, áður en þið haldið áfram hér.
Þarna segi ég ykkur að nú ætli ég að taka á öllu mínu og lifa 100% eftir ddv og spyr hvort það vilji einhverjir vera memm.....ég fékk fullt af viðbrögðum.
Hvað hefur gerst síðan.....? Spyrjið ykkur, hafið þið náð árangri? Ætluðuð þið að gera eitthvað? Eða vilduð þið bara kommenta?
Ég skal vera hreinskilin, ég hef ekki staðið mig í því að standa við það sem ég skrifaði þarna - jamm ég er svikari!!! Ég sveik sjálfa mig. Svikuð þið ykkur?
Málið er nefnilega að maður verður að velja sér markmið sem maður telur vera raunhæf. Það var ekki raunhæft fyrir mig að byrja 100% á ddv þann 8. september sl. Ástæðurnar eru nokkrar en ein af þeim er að ég er nýflutt til annars lands, er að venjast aðstæðum hér og koma mér upp daglegri rútínu með fjölskyldunni og einnig í náminu mínu. Ég get bara ekki hugsað um margt í einu, það er bara þannig (endalausar afsakanir hugsar einhver!!!). Ég hef lagt meiri áherslu á hreyfingu og við það ætla ég að standa, setti mér markmið sem er raunhæft og það verður staðið við það svo mikið er víst. Mataræðið kemur á eftir fjölskyldunni, náminu og hreyfingunni. Hvað ég læt ofan í mig stjórnast af því hvað ég versla inn og það er sem betur fer í hollari kantinum og á bara eftir að batna því við erum komin með ávaxta og grænmetiskassa í áskrift.
Stóra markmiðið mitt er að eiga gott líf með fjölskyldunni, heilbrigð og hress. Njóta þess sem umhverfið hér hefur upp á að bjóða og hreyfa mig
Annars ef ég pæli í kílóatölum þá er ég 6 kg of þung (það er staðreynd) og hef sett mér það markmið að létta mig, eins og áður sagði er hreyfingin aðalparturinn þar og auðvitað spilar mataræðið inn í sem er og verður í hollari kantinum
Veit ekki en er það kannski ekki raunhæft að taka 3 kg af fyrir jól og önnur 3 eftir jól? - tja veit ekki? Stóra markmiðið er að vera búin að því allavega fyrir sumarið
Held að það sé raunhæft og þá þarf ég ekki að svíkja mig!! VERA RAUNHÆF!

Hey, vá! Ég held að kommentið mitt hafi verið lengri en bloggfærslan þín! :D
#2
27. október 2009 klukkan 12:41
ég kommentaði , ég ætlaði að vera með, ég man samt ekki hvað ég sagðist ætla að gera!!
ég er með, ég er ekki að standa mig 100% svo ég er líka svikari....
ég hef ekki staðið mig nógu vel í mataræðinu og sérstaklega ekki seinustu viku þegar allir voru veikir heima hjá mér
en ég er farin að hreyfa mig meira, blakið auðvitað, svo hef ég farið út með stafina og í gær byrjaði ég að hlaupa aftur jey
ég er sammála þér í sambandi við hreyfinguna, hún er númer eitt tvö og þrjú þannig léttist ég um 11 kg í fyrra og þannig ætla ég að léttast um önnur 11 núna.
HREYFA SIG
manni líður betur andlega og líkamlega, maður borðar hollar (ósjálfrátt) maður fær meira úthald bæði líkamlegt og andlegt, maður léttist og stirkist
jey förum út að hlaupa
knús á þig krúttið mitt

#3
27. október 2009 klukkan 13:32
Áslaug (Elvu systir)
Hæ Sigga, hef ekki svo mikið sem kvittað hjá þér áður; en kíki reglulega á þig... Ég er búin að vera on/off DDV í uþb. 2 og hálft ár; fyrst fóru 12 kg, svo komu 8, svo fóru 6, svo komu fjögur... osfrv... og núna er eiginlega svo komið að þó ég sjái algjörlega skynsemina í DDV mataræðinu og ég veit vel að þetta virkar þá þurfti ég nýjan vinkil á þetta átaks dæmi allt saman. Var orðin svolítið heilaþvegin en samt erfiðara og erfiðara að “sæka” mig uppí að byrja, í enn eitt skiptið. Svo núna er ég byrjuð í fjarþjálfun hjá þessari stelpu:
http://blog.eyjan.is/ragganagli/
Og finnst það alveg frábært að fá aðeins “nýjar reglur” í mataræðið og markvisst æfingarprógram.. og þó þetta sé ekki nákvæmlega það sem þú ert að leita að þá mæli ég algjörlega með blogginu hennar; fullt af visku sem maður hefur gott af að heyra.
Gangi þér vel í baráttunni ;)

#4
27. október 2009 klukkan 14:47
Sigga Júlla
Kærar þakkir allar fyrir viðbrögðin og Áslaug hún Raggga nagli er ansi góð;)
#5
27. október 2009 klukkan 17:29
Þórunn Harðar
Hæ!
Ég er ein af þeim sem ætlaði að vera memm, enda veitti ekki af - kílóin hafa hlaðist á mig s.l. ár. Ekki er ég þó á danska, heldur er ég í matarmeðferð hjá MFM-miðstöðinni þar sem fylgt er ákveðnu matarprógrammi auk þess að vinna með 12 spora kerfið.
Þið getið kynnt ykkur það á slóðinni: http://matarfikn.is/
Allt sem ég læt ofan í mig er vigtað og ég sleppi ákveðnum matartegundum sem vekja fíkn í það sem þarf að forðast. Þetta hefur gengið vægast sagt frábærlega vel - ég er aldrei svöng og langar mjög sjaldan í eitthvað annað en það sem er á mínum matseðli.
Síðan ég byrjaði, þann 12. september hef ég misst 6,5 kíló, svo ég er ánægð. Hreyfingin bíður betri tíma, nú er allur fókusinn á mataræðið - enda veit ég að þar verð ég að byrja.
Svo ég sendi baráttukveðjur - þetta er alltaf þungur róður en saman eru okkur allir vegir færir, ekki satt!
Knús og kossar frá mér ;-)

#6
27. október 2009 klukkan 20:22
Glæsilegt hvað það gengur vel hjá þér Þórunn! :) Skiptir engu máli hvaða aðferð maður notar, bara ef maður nær árangri :)
Við getum sko allt sem við ætlum okkur, það er ekki spurning :)

#7
27. október 2009 klukkan 23:13
Og Sigga mín...ekki vera of hörð við þig. Þú kannski stóðst ekki við það sem þú ætlaðir þér en eins og þú segir þá er nóg að gera hjá þér og þetta er alltaf erfiðara á meðan hlutirnir eru að komast í rútínu. Þetta kemur allt með kalda vatninu. Ég VEIT að þú getur þetta eins og allt annað sem þú ætlar þér þannig að það er þá bara að byrja. 100% rétt mataræði þarfnast náttúrulega skipulagningar og þú kannt sko alveg að skipuleggja þig. Fyrir einhverju síðan man ég eftir að hafa lesið um að þú værir að skipuleggja lærdóminn þannig að þú myndir læra 8 tíma á dag. Næsti skipulagningapakki hjá þér (ykkur fjölskyldunni) gæti verið að skipuleggja matseðil fyrir vikuna þar sem allir hafa sitt til málanna að leggja og þú gætir þá hugsað um hvernig hægt væri að gera máltíðirnar þannig að þær henti þínu mataræði betur.
En...það sem það eru ekki nema tæpir 2 mánuðir til jóla og prófatími framundan, þá myndi ég ekki vera að stressa mig of mikið á því að taka 3 kg fyrir jól. Ég veit að þér finnst þú þurfa að losna við þessi kíló og ég veit líka að þér á eftir að takast það, en ef ég væri í þínum sporum þá myndi ég slappa af það sem eftir lifir árs, og með því að "slappa af" meina ég að vera ekki að einblína á að taka af þér þessi 3 kg. Frekar bara vera dugleg að hreyfa þig, passa upp á mataræðið (reyna t.d. að hætta öllu nammiáti, þá fara nú kg fljótt) og allur léttingur fyrir áramót er bara plús :) Svo eftir áramótin þá tekurðu þetta með trompi! :D 6 kg eftir áramót fram að sumarfríi er bara pís of keik ef maður heldur sér við efnið :) Ég þarf einmitt líka að losna við 6 kg. 8 væru frábært, en ef 6 fara þá er ég á sama róli og ég var þegar ég varð ólétt af GH.
Fyrirgefðu ef þér finnst ég vera of afskiptasöm en þetta er að minnsta kosti það sem ég myndi ráðleggja þér að gera.
Gangi okkur vel í baráttunni :) Við getum þetta!!!
Risaknús til þín og ykkar!
Kv. Magga afskiptasama ;)