Allir komust til sinna verka í morgun
26. október 2009 klukkan 12:56
Það er semsagt enginn veikur hér á bæ 7-9-13!
Haukur var heima þrjá daga í síðustu viku og ég hef verið að ná mér af kvefinu sem ég fékk um daginn.
Ég fór í súpuna á leikskólann til Þórðar á fimmtudaginn og keypti dúk og lukt sem drengurinn hafði gert. Ansi sniðugt en það voru ekkert háar upphæðir í gangi þarna, súpan kostaði 10 kr og munirnir sem voru til sölu 5-10 kr. Ágóðinn af sölunni fer svo til að greiða niður skólakostnað fyrir strák sem heitir Omis og býr í Nepal.
Við áttum ljómandi fína helgi. Okkur var boðið í mat á föstudagskvöldið og áttum þar fína stund með vinum okkar Birni og Bríeti og hittum loksins elstu dóttur þeirra sem er í framhaldsskóla heima á Íslandi. Þórður var reyndar ekki eins og hann átti að sér að vera, fékk hita.
Hann var hressilegri á laugardagsmorgninum og töldum við allt í lagi að fara í íslenska kjötsúpu til Jolla í hádeginu ....mmmmm get ekki lýst tilfinningunni að fá íslenskt lambakjöt jeminneini!
Eftir kjötsúpuna brunuðum við til Svíþjóðar en ísskápurinn, búrskápurinn og frystihólfið var allt galtómt og ekki veitti af því að gera innkaup í snarheitum.
Þegar heim var komið var Þórður mjög slappur og sofnaði á meðan ég gerði pizzu en það var ekki nógu gott því hann hafði fengið nammi í Svíþjóð og maginn var því í hnút þegar hann vaknaði árla sunnudagsmorguns. Drengurinn kastaði upp en hitalaus og svona líka hress!! Hann var semsagt ekki með neinn hita í gær og fór því í leikskólann í dag.
Í gærmorgun var semsagt okkar fyrsta verk að breyta öllum klukkum á heimilinu eða að færa þær aftur um einn klukkutíma - maður græddi semsagt klukkutíma.
Fyrir utan hefðbundin helgarverk (þrífa og þvo þvott) þá bar bökuð kaka og hingað komu nokkrir gestir sem runnu á lyktina
Helgi skólafélagi frá Hvanneyri sem býr og starfar í Strafanger var hér um helgina hjá kærustunni sinni henni Theu og kíktu þau ásamt Gunnu afmælisbarni í kaffi, síðan bættust þau Ragnar og Hrafnhildur í hópinn. Þetta var bara gaman.
Hápunktur helgarinnar var svo í gærköldi þegar við fórum til Ski í bíó á "Stúlkan sem lék sér að eldinum".
Jæja, mánudagur er semsagt í dag og alls ekki til mæðu. Skilaði verkefni í dag og krossa nú puttana.....
Held ég sé búin að jafna mig nægilega á kvefinu til að fara allavega einn hring í rólegheitunum (4,7 km).
Adios!
Haukur var heima þrjá daga í síðustu viku og ég hef verið að ná mér af kvefinu sem ég fékk um daginn.
Ég fór í súpuna á leikskólann til Þórðar á fimmtudaginn og keypti dúk og lukt sem drengurinn hafði gert. Ansi sniðugt en það voru ekkert háar upphæðir í gangi þarna, súpan kostaði 10 kr og munirnir sem voru til sölu 5-10 kr. Ágóðinn af sölunni fer svo til að greiða niður skólakostnað fyrir strák sem heitir Omis og býr í Nepal.
Við áttum ljómandi fína helgi. Okkur var boðið í mat á föstudagskvöldið og áttum þar fína stund með vinum okkar Birni og Bríeti og hittum loksins elstu dóttur þeirra sem er í framhaldsskóla heima á Íslandi. Þórður var reyndar ekki eins og hann átti að sér að vera, fékk hita.
Hann var hressilegri á laugardagsmorgninum og töldum við allt í lagi að fara í íslenska kjötsúpu til Jolla í hádeginu ....mmmmm get ekki lýst tilfinningunni að fá íslenskt lambakjöt jeminneini!
Eftir kjötsúpuna brunuðum við til Svíþjóðar en ísskápurinn, búrskápurinn og frystihólfið var allt galtómt og ekki veitti af því að gera innkaup í snarheitum.
Þegar heim var komið var Þórður mjög slappur og sofnaði á meðan ég gerði pizzu en það var ekki nógu gott því hann hafði fengið nammi í Svíþjóð og maginn var því í hnút þegar hann vaknaði árla sunnudagsmorguns. Drengurinn kastaði upp en hitalaus og svona líka hress!! Hann var semsagt ekki með neinn hita í gær og fór því í leikskólann í dag.
Í gærmorgun var semsagt okkar fyrsta verk að breyta öllum klukkum á heimilinu eða að færa þær aftur um einn klukkutíma - maður græddi semsagt klukkutíma.
Fyrir utan hefðbundin helgarverk (þrífa og þvo þvott) þá bar bökuð kaka og hingað komu nokkrir gestir sem runnu á lyktina
Helgi skólafélagi frá Hvanneyri sem býr og starfar í Strafanger var hér um helgina hjá kærustunni sinni henni Theu og kíktu þau ásamt Gunnu afmælisbarni í kaffi, síðan bættust þau Ragnar og Hrafnhildur í hópinn. Þetta var bara gaman. Hápunktur helgarinnar var svo í gærköldi þegar við fórum til Ski í bíó á "Stúlkan sem lék sér að eldinum".
Jæja, mánudagur er semsagt í dag og alls ekki til mæðu. Skilaði verkefni í dag og krossa nú puttana.....

Held ég sé búin að jafna mig nægilega á kvefinu til að fara allavega einn hring í rólegheitunum (4,7 km).
Adios!
Anna Lóa
kvitt kvitt. Gott að allir eru hressir:)
#1
27. október 2009 klukkan 10:15