Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

farið að síga á seinnihluta vikunnar

22. október 2009 klukkan 07:17
Mér var boðið í bíó í gær með tveimur íslenskum stelpum, önnur býr hér í Ås (Bríet) og hin býr í Osló (Sigrún). Þetta var ferlega gaman, fórum og sáum Julia og Julie og ég verð nú að segja að ég mæli með þessari mynd. Hún gengur mikið út á matargerð og það finnst mér alveg frábært og svo er Meryl Streep alveg óborganleg. Eftir bíóið fórum við á Tapas-bar og fengum okkur að borða og spjölluðum um heima og geima, þetta er nauðsynlegt að gera öðru hvoru.
Var að hugsa að það er ekki slæmt að eyða kvöldstund með guðfræðingi og lýðheilsufræðingi - enda er ég í mjög góðu jafnvægi núna Smile Yndislegar stelpur.

Haukur liggur heima núna, er líklega með sömu pest og ég fékk um síðustu helgi, hann verður fljótur að hrista hana af sér.
Strákarnir eru hressir. Fór reyndar með Stefán til læknis í vikunni út af inngrónum tánöglum sem plaga hann endalaust, núna fer hann tvisvar á dag í fótabað, tekur inn pencilin og býður eftir að verða innkallaður á sjúkrahús þar sem eitthvað verður gert í þessum fjanda.
Það er súpudagur á leikskólanum hjá Þórði í dag. Súpa, kaffi og nepalskt te til sölu frá 15-16:30 og einnig verða ýmsir munir til sölu sem leikskólabörnin hefa búið til. Þetta gera þau til að safna peningum til styrktar skólagöngu barna í Nepal. Þetta er í gegn um FORUT barneaksjon. Þórður er mjög upptekinn yfir þessu (skiljanlega) en gærdagurinn fór í það að brytja niður grænmeti í súpuna og leggja lokahönd á söluvarninginnCool
Jæja læt þetta duga í bili, góðar stundir.

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.