Allt á uppleið
20. október 2009 klukkan 18:44
Bara gleði! Þessi pest sem ég fékk eða smágrísaflensa a la Sigga en mjög eðlilegt fyrir mig, fæ nefnilega oft kvef svona líka hastarlegt að ég steinligg í einn dag, er svo svona 2-3 daga að ná mér. Til marks um það að ég er að hressast er að ég fór í göngutúr með Bríet seinnipartinn í dag
Á von á því að geta hlaupið um helgina og þá verður sko tekið á því!!! Enda ekki nema tæplega fjórar vikur til stefnu til að ná markmiði mínu; hlaupa 5 km án þess að stoppa eða labba - og því ætla ég að ná!!!
Svo er ég orðin svakalega fókuseruð núna að nú er allt eða ekkert, hef endurskoðað vigtunarmarkmið mín en ég er orðin 6 kg of þung og því um að gera að grípa inní. 2 kg skulu burt á næstu fjórum vikum og hananú! Svo hef ég sett inn fleiri markmið inn undirsíðuna "tölfræði".
Var að vinna í hópaverkefninu með henni Runu frá Elverum í dag, skemmtileg stelpa og ekki mjög týpísk norsk. Hún er jú með bakpoka og matpakka, fer í skógarferðir og allt það. Það er meira svona hennar viðhorf sem er ekki mjög norkst, hún t.d. er alveg sammála því að hlýnun jarðar sé að verða vandamál og skilur ekki hvað norðmenn eru ferkanntaðir í þeim efnum. Það er nefnilega viðhorfið hér að gróðurhúsaáhrifin séu ekkert vandamál......jebb! Ég var einnig að tala um það við hana að ég hef skynjað svo mikinn hroka hjá mörgum samnemendum gagnvart MIS sem er umhverfisvöktun en ákveðið hlutfall af öllum skógum Noregs eru MIS skógar, þetta eru svæði hér og þar í Noregi og þarna er verið að fylgjast með framvindu. Semsagt málið er að á meðan þeir eru pirraðir á þessu þá nota þeir mest innlendar tegundir (rauðgreni og skógarfuru) þó aðrar tegundir gætu gefið meiri við og meiri framleiðni, nei sko þá eru það trúarbrögð!!! Erfitt fyrir mig að skilja þá af hverju þeir eru svona pirraðir á MIS....en svona er þetta bara. Það er bara svo margt sem við Runa höfum rætt sem er svo gaman að heyra hennar viðhorf t.d. í sambandi við jafnréttismál.
Við Runa ákváðum það að við verðum mjög glaðar ef við fáum B fyrir verkefnið, líka í ljósi þess að við erum fjögur í hópnum og hinir tveir hafa ekkert lagt til málanna, enda eru þeir ekki í skógfræðináminu, heldur á tískubrautinni - nýjustu brautinni "Fornybar energi" en krakkarnir sem eru á þeirri braut eru á allt annarri bylgjulengd en við skógarálfarnir en það er skilda hjá þeim að taka þennan skógarkúrs og við verðum að sætta okkur við að hafa þau með .....
Læt þetta duga í bili - góðar stundir.
Á von á því að geta hlaupið um helgina og þá verður sko tekið á því!!! Enda ekki nema tæplega fjórar vikur til stefnu til að ná markmiði mínu; hlaupa 5 km án þess að stoppa eða labba - og því ætla ég að ná!!!Svo er ég orðin svakalega fókuseruð núna að nú er allt eða ekkert, hef endurskoðað vigtunarmarkmið mín en ég er orðin 6 kg of þung og því um að gera að grípa inní. 2 kg skulu burt á næstu fjórum vikum og hananú! Svo hef ég sett inn fleiri markmið inn undirsíðuna "tölfræði".
Var að vinna í hópaverkefninu með henni Runu frá Elverum í dag, skemmtileg stelpa og ekki mjög týpísk norsk. Hún er jú með bakpoka og matpakka, fer í skógarferðir og allt það. Það er meira svona hennar viðhorf sem er ekki mjög norkst, hún t.d. er alveg sammála því að hlýnun jarðar sé að verða vandamál og skilur ekki hvað norðmenn eru ferkanntaðir í þeim efnum. Það er nefnilega viðhorfið hér að gróðurhúsaáhrifin séu ekkert vandamál......jebb! Ég var einnig að tala um það við hana að ég hef skynjað svo mikinn hroka hjá mörgum samnemendum gagnvart MIS sem er umhverfisvöktun en ákveðið hlutfall af öllum skógum Noregs eru MIS skógar, þetta eru svæði hér og þar í Noregi og þarna er verið að fylgjast með framvindu. Semsagt málið er að á meðan þeir eru pirraðir á þessu þá nota þeir mest innlendar tegundir (rauðgreni og skógarfuru) þó aðrar tegundir gætu gefið meiri við og meiri framleiðni, nei sko þá eru það trúarbrögð!!! Erfitt fyrir mig að skilja þá af hverju þeir eru svona pirraðir á MIS....en svona er þetta bara. Það er bara svo margt sem við Runa höfum rætt sem er svo gaman að heyra hennar viðhorf t.d. í sambandi við jafnréttismál.
Við Runa ákváðum það að við verðum mjög glaðar ef við fáum B fyrir verkefnið, líka í ljósi þess að við erum fjögur í hópnum og hinir tveir hafa ekkert lagt til málanna, enda eru þeir ekki í skógfræðináminu, heldur á tískubrautinni - nýjustu brautinni "Fornybar energi" en krakkarnir sem eru á þeirri braut eru á allt annarri bylgjulengd en við skógarálfarnir en það er skilda hjá þeim að taka þennan skógarkúrs og við verðum að sætta okkur við að hafa þau með .....

Læt þetta duga í bili - góðar stundir.
Anna Lóa
gott að þér er að batna : ) gangi ykkur vel með verkefnið:)
#2
21. október 2009 klukkan 19:52
Ég skal koma með þér að hlaupa í sumar (ef ég verð komin í form) ;)
En annars sendum við bara knús og kossa á ykkur:)
p.s. það er æði hvað þú ert dugleg að blogga, gaman að geta fylgst með :)