Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

LASIN

18. október 2009 klukkan 09:57
Föstudagur: Fann að ég var að fá kvef, slappaðist meir og meir eftir því sem leið á daginn. Lærði lítið.
Laugardagur: Lá fyrir allan daginn í bælinu, í svitakófi, gat varla lyft höfði frá kodda nema til að sníta mér, hóstaði mikið, fékk mér vatnssopa af og til, notaði Otrivin nasaúða í miklu mæli og hálstöflur....svaf ótrúlega mikið.
Haukur og Þórður fóru í sund og Stefán hitti vini sína.
Dagurinn í dag: Er lurkum lamin eftir "langa" rúmlegu, er að drepast í bakinu, með þungan hósta (hósta öllu gromsinu upp), ætla í sturtu og vonast til að ná mér eitthvað á strik, hvíld er mottó dagsins og svo ætla ég að líta í skemmtilegustu námsbækurnar. Haukur og strákarnir fóru til Osló, á tæknisafnið (Teknisk museum) þannig að þeim ætti ekki að leiðast.

Fórum ekki til Svíþjóðar að versla í ísskápinn en stefnum að því eftir vinnu einhvern daginn í vikunni.

 
Ţórunn Harđar
Ósköp eru að heyra þetta elsku besta, farðu vel með þig og klæddu þig vel - aðalmálið að vera laus við allan hroll. Sitja undir teppi, vera í ullarsokkum, sofa með trefil og klæða sig vel þegar farið er út í hrollkuldann á morgnana. Svo mæli ég með því að hafa alltaf góðan hita á baðherberginu allan veturinn - bara yndislegt að stíga inn á ylvolgar flísarnar ;-)
Eiginlega hefðir þú þurft að vera með okkur saumóskvísum í Skógarkoti um helgina, við hefðum getað dekrað og dúllað við þig enda vorum við vel birgar af alls kyns snyrtivöruprufum sem við smurðum okkur upp úr og komum heim endurnærðar á sál og líkama! Bið að heilsa öllum strákunum þínum - stórt knús til þín frá mér!
kv. Þórunn.
#1
18. október 2009 klukkan 16:06
æ en leiðinlegt að lesa, vonandi ertu að hressast.
Það eru líka veikindi á mínu heimili. Sigtryggur liggur flatur, hann veiktist í gær og ég var ekkert viss um að það væri svínaflensan. Hann liggur rotaður inni í rúmi núna. En í nótt lagðist litla barnið mitt. Óskar Óðinn vaknaði með rosalegan hausverk og hita klukkan sex í morgun. Mér finnast hans einkenni mjög lík svínaflensu einkennum svo ég veit ekkert í minn haus. Vona bara að þetta sé svínið svo við losnum við það af heimilinu núna í eitt skipti fyrir öll.
#2
19. október 2009 klukkan 10:50
leitt að heyra að þú ert lasin.. en vonandi nærðu að hrista þetta fljótt af þér, áttu góðan bata :)
#3
19. október 2009 klukkan 12:49
Æi, leiðinlegt að heyra...vonandi batnar þér fljótt! Hefurðu ekki keypt þér eitthvað gott koníak í Svíþjóð?? ;) Er það ekki allra meina bót?

Kv. Margrét
#4
19. október 2009 klukkan 17:07
Góðan bata!
#5
20. október 2009 klukkan 08:47

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.