Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Vá, enn einn föstudagurinn runninn upp!

16. október 2009 klukkan 06:45
Ótrúlegt hvað vikurnar fljúga burt. Október hálfnaður og næstum þrír mánuðir síðan við sigldum frá Seyðisfirði, það er bara fjórðungur úr ári, takk fyrir. Það eru um tveir mánuðir þar til næstu gestir eru væntanlegir, tvær Borgfirskar skutlur koma 17. des í helgarferð og síðan koma mamma og pabbi og verða hér í viku yfir jólin.

Vikan hefur einkennst af vinnu og skóla hjá okkur hér á heimilinu og lítið verið gert annað. Það er spurning hvort við skellum okkur til Svíþjóðar í fyrramálið eða á sunnudagsmorguninn að versla - ekki alveg ákveðið. Seinnipartinn á morgun er sund í Son með leikskólanum en við gætum alveg náð því að fara og versla í Svíþjóð, koma heim og fara í sund. Svo er alveg kominn tími á að fara í skógartúr og kveikja eld úti í skógi og grilla pylsur - gerum það kannski bara líka Wink Sjáum til.

Það er búið að vera frekar kalt hér þessa viku, hitastigið hefur farið niður í -7°á nóttunni og er svona rétt yfir frostmarki á daginn en það er logn, þökk sé trjánum og svo sýnir sólin sig flesta daga, eitthvað smá. Á leiðinni í skólann "veð" ég laufblöð í haustlitum Smile

Ég hef ekki staðið mig nógu vel í skokkinu en ætla ekki að svíkja mig í dag og ætla út. Það er nefnilega svo ágætt þegar maður hefur setið lengi við lestur að standa upp og fara út í ferska loftið.
Í dag verður semsagt lærdóms og lestrardagur hér heima, skokk um miðjan daginn og pizzugerð í kvöld.

Það gengur vel hjá öllum öðrum á heimilinu, Stefán er tvö kvöld í viku í norskukúrs og kemst því bara einu sinni í viku í badminton. Þórði líkar vel á leikskólanum, farinn að tala eitthvað og slettir hér heima. Hauk líkar vel í vinnunni en er hálf aumur í bakinu, þarf að passa vel upp á sig.

Jæja læt þetta duga í þetta sinn.
Góða helgi allir saman.

 
Tedda
Gott og gaman að heyra að allt gangi samkvæmt "áætlun" ...rúllar eins og "normal" heimilislíf, vinna,læra,borða,sofa o.s.frv. Það yljar mér að lesa bloggið þitt, kemst nær ykkur og stundum liggur við að ég finni kaffiilminn úr könnunni þinni með þæfðu hitahlífinni :) .. hehe
Njótið helgarinnar... það ætla ég að gera í þetta sinn fyrir vestan í faðmi stórfjölskyldunnar :) Strákarnir verða fyrir sunnan, reyndar á Flúðum þar sem Pétur Freyr er að keppa á körfuboltamóti - verður stuð hjá þeim. Ragnar Magni er byrjaður í badmintoninu aftur, fílar það vel held ég :)

Eigið góða helgi
Knús á alla
Tedda
#1
16. október 2009 klukkan 11:44

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.