Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Menningarmunur

13. október 2009 klukkan 11:19
Varð áþreifanlega vör við menningarmun milli Noregs og Íslands nú á dögunum.
Þannig var að ég var í gönguferð um háskólasvæðið með Palla og Torfa (sem voru í heimsókn). Viðákáðum að enda gönguna á kaffihúsi niðrí bæ og taldi ég upp þau þrjú kaffihús sem kæmi til greina: Ås torget, Texas og bókakaffið. Ås torget er sambland af matsölu, pöbb og kaffihúsi og okkur leist ekkert rosalega vel á það, Texas hljómaði einkennilega í eyrum gestana þannig að bókakaffið varð niðurstaðan. Við fórum þangað en það ber alveg nafn með rentu, þarna er mikið af bókum, sófi sem í sat gamall karl og við fætur hans lá hundur og á gólfinu var drykkjarskál (fastagestir greinilega), fólk sat við nokkur borð grúfði sig í bækur, vann í tölvu, talaði á Skype, spjallaði og börn voru þarna einnig að leik. Einstaklega heimilislegt semsagt. Á dagens menu var: kaffi (latte, expresso og fl.), te, kakó og svo var hægt að fá gos og safa. Ekkert meðlæti var hægt að fá en afgreiðslukonan sagði að við gætum farið út í sjoppuna við hliðiná eða í Kiwi (sem er kjörbúð) til að kaupa meðlæti!!! Við tókum svo eftir því að þarna inni var fólkið með matpakka með sér.
Í skólanum í morgun barst það í tal við eina stelpu að ég hefði farið í bókakaffið, ég ætlaði eitthvað að segja að mér finndist þetta einkennilegt að geta ekki keypt meðlæti með kaffinu þarna. Stelpan sem ég var að tala við greip frammí fyrir mér og fór að dásama þetta og hvað það væri frábært að maður gæti bara haft með sér meðlæti..... ÞETTA ER MENNINGARMUNUR.
Fór síðan að hugsa það að ég hef bara ekki séð "bóhemtýpur" hér....man eftir því þegar ég var að vinna á Kaffi Krók að þar voru nokkrar listaspírur sem hengu þar og hugsuðu eða ortu...hef ekki séð svoleiðis hér....ég meina það ég bý í 15 þúsund manna sveitarfélagi og ég hef ekki séð einn svoleiðis!!!
hahaha
Ég skil hvað þú meinar, að geta haft með sér matpakka eru forréttindi!!
Ég fílaði matpakka menninguna og ætla að gera mitt besta í að halda í hana núna eftir að ég kom heim. Það er samt auðveldara þegar maður er í samfélagi þar sem þetta er eðlilegt, eða í samfélagi þar sem maður er næstum því litin hornauga ef maður er með nesti.
Áður en þú veist af, verður þú orðin fastagestur á kaffihúsinu og tekur með þér smákökur eða brauð sem þú bakaðir sjálf og bíður hinum fastagestunum með þér, klappar hundinum og lest í skólabók.
knús á ykkur
#1
13. október 2009 klukkan 11:30
Sammála, þetta er eitt af því sem maður saknar við að vera komin heim. Þessi menningarheimur þarna í Noregi. Að mörgu leiti fannst mér siðir þeirra og venjur henta manni betur heldur en íslenskur lífstíll. Þó oft erfitt að framfylgja í íslensku samfélagi þar sem menning er önnur.
bestu kveðjur og njótið vel :)
#2
13. október 2009 klukkan 13:12
 
Edda
Smá spurning þessu tengdu, hvernig rekur svona kaffi hús sig?
#3
13. október 2009 klukkan 21:21
 
Sigga Júlla
Það er mér hulin ráðgáta Edda.....
#4
14. október 2009 klukkan 05:07

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.