Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Tamningin gengur vel....

02. október 2009 klukkan 07:02
...þ.e.a.s. að temja mér sjálfsaga.
Var meirihluta vinnudagsins í gær úti í skógi í verklegum æfingum í skógmælingum, þá söfnum við ýmsum upplýsingum og förum svo með þær heim og reiknum ýmsar stærðir eins og t.d. þéttleika skógarins og rúmmál. Það er nenfilega mikilvægt að kunna þessa útreikninga og aðferðafræði við skógarúttektir. Talaði við Valda í Álfhól og hann var að segja mér að nú færi fram mjög stór grisjun í Skorradalnum eða um 9 ha en markaðurinn er Grundartangi sem tekur allt efnið í kurli og notar í vinnsluna. Þetta er jákvætt - það er þá ekki verið að flytja inn kurl í vinnsluna Wink
Þegar ég var nýlega komin heim úr skóginum, hringdi Haukur en hann var á leiðinni til læknis....ég fékk sjokk! Hann hafði verið að brasa við að toga í múgavél og lyfta henni um leið og við það small eitthvað í hryggnum og hann hneig niður og var næstum liðið yfir hann af sársauka. Björg (kona Eivinds á Lesterberg) keyrði Hauk til vakthafandi læknis hér í Ås og það var indverjinn....ahhhh sem hafði ekki mikið um þetta að segja nema að skrifa uppá bólgueyðandi verkjastillandi töflum. Aðalmálið hjá þessum lækni var að hann gat ekki skrifað nafnið hans Hauks og Björg varð að frekjast í tölvuna hjá indverjanum til að skrifa nafnið, því hann gat ekki skrifað það þó hún stafaði það aftur og aftur. Björg sagði svo að hann talaði mjög lélega norsku og það væri ekki furða að Haukur skildi næstum ekkert sem hann sagði (eða það litla sem hann sagði). Fegin að hann er ekki heimilislæknirinn okkar, við völdum okkur sænskan heimilislækni sem er með stofu hér rétt hjá og er frekar vinsællSmile
Þannig að nú liggur eiginmaðurinn fyrir á sterkum verkjalyfjum. Björg talaði um að hann gæti farið til kírópraktors. Norðmenn nýta sér þá mjög mikið ásamt nálastungum og mér skilst að kírópraktórarnir séu alveg inní heilbrigðissysteminu hér, þó það kosti slatta þá mega þeir skrifa upp á "sykemeldingar" og annað slíkt. Við bara vonum að þetta gangi sem fyrst til baka því þetta er ömurlegt, svo nagar það Hauk að honum finnst hann vera að svíkjast um í vinnunni - nóg að gera og svona...en svona er þetta, slysin gera ekki boð á undan sér.

Þannig að nú þeytist ég með Þórð í og úr leikskóla, hann var hissa að sjá mig koma í gær að sækja sig. Síðan var nú ætlunin að vera ekkert að spenna hann upp fyrir allar aldir í morgun því okkur lá ekkert svo á. Hann svaf korteri lengur en vanalega þannig að við vorum komin á leikskólann rétt fyrir hálf átta!!
Það er ansi kuldalegt hér á morgnana, maður þarf að skafa bílinn og klæða sig vel, þannig að ullarskyrtur og síðbrækur koma að góðum notum þessa dagana. Þegar Þórður mætir á leikskólann er ekkert farið inn, það er leikið úti í garði og síðan borða þau morgunmatinn úti eða í grillhyttunni sem er á leikskólalóðinni - ansi kuldalegt stundum finnst mér.

Dagurinn hjá mér verður svona:
Lestur og útreikningar
Skokk
Sækja Þórð á leikskólann
Fara í búð og kaupa föstudagsgotteri (hefð hér á þessu heimili - snakk og gos)
Þvottastúss
Pizzugerð
Jamm það er föstudagur Wink
Góða helgi.
Gott hjá þér með agann :) en leiðinlegt að lesa af Hauk :( Vonandi er þetta ekkert alvarlegt. Haukur! þú ert ekki að svíkjast um í vinnunni. Stundum þurfa duglegir menn að sitja heima og láta sér batna til að batinn vari lengur ;o) Gangi ykkur samt vel og njótið föstudagsins.... nammnamm.. hehe Q:oD
#1
02. október 2009 klukkan 08:10
 
Sú ráðagóða
Já er þetta ekki alveg merkilegt, sé maðurinn veikur þá er hann að „svíkjast um“. Haukur minn allir sem þekkja þig vita að þú ert ekkert að svíkjast um. Tengdafaðir þinn hélt þetta um daginn og mætti í vinnu eftir tveggja daga veikindi og honum sló niður og er núna búinn að liggja heima í viku étandi sýklalyf. Teku þessu rólaega og láttu þér batna vel.
Kveðja til ykkar allra
mamma
p.s.
Ég fæ svona fiðring í magan þessa dagana, var að enda við að borga ferðina um jólin.
#2
02. október 2009 klukkan 08:49
Föstudagur jey!!
Vonandi nær Haukur sér af þessu bakmeiðsli, þau geta verið svo leiðinlega þrálát!!
Hafið það gott
#3
02. október 2009 klukkan 09:12
 
Tedda
Halló mín kæra... já ekki eru þetta góðar fréttir af Hauk, vona bara (og veit) að hann hafi "vit" á því að gefa þessu tíma til að lagast almennilega, ekkert smá í húfi að hafa bakið í lagi !! Gefðu honum bara koníak með pillunum þá verður hann slakur :)

Hér er skítaveður í dag, hrollur í fólki - sem gæti þó meira stafað af öllum þessum hrikalegu skattahækkunum og niðurskurði sem Steingrímur boðaði í gær !!! ó mæ.... held bara að það sé ekkert sem hækkar ekki.... og það ekkert smá.

Úff.. er Þórði mínum bara beitt út í öllum veðrum... brrr...trúi vel að það geti verið ansi kuldalegt stundum, gott að fá heitt kakó þegar heim er komið :)

Vildi að ég væri með svona fiðring í maganum eins og mamma þín :)

Knúsaðu kallana frá mér
Góða helgi
Tedda
#4
02. október 2009 klukkan 09:26
Hei Sigga, håper det går bra med Haukur...! Det hørtes ikke bra ut, men det ordner seg vel etter hvert. Håper du får en god helg med familien din! Hilsen Thea.
#5
02. október 2009 klukkan 11:30

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.