Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Mér finnst ég nýta tímann illa!!!!

30. september 2009 klukkan 12:53
-....og þess vegna ætla ég að fjalla um sjálfsaga í þessu bloggi.
Ég hef verið að pirra mig á því hvað ég eigi erfitt með að einbeita mér og sitja við og læra hér heima - verið að velta fyrir mér hvað valdi þessum einbeitingarskorti.
Leiðist mér? Nei
Finnst mér námið leiðinlegt? Nei
Er ég með heimþrá? Nei
Er íbúðin sem ég bý í leiðinleg? eeee, jú frekar en ég hef ákveðið að sætta mig við hana í tvö ár.
-Og svo hef ég spurt mig margar annarra spurninga......en lokaspurningin:
Er ég dugleg að skipuleggja tíma minn heima eftir fyrirlestra? Nei!!!
Þarna kom svarið - það sem hrjáir mig er skortur á sjálfsaga og þar verð ég að bæta mig!

Hvað er sjálfsagi? Það er erfitt að segja það í stuttu máli en er það ekki bara það að taka ábyrgð á sínum gerðum, þekkja tengslin á milli orsaka og afleiðinga? Tja, mér finnst ég ekki nýta tíman nógu vel, ég sit ekki við í 8 klukkutíma og læri - orsökin verður sú að ég fæ e.t.v. ekki eins háa einkunn. En ég vil sitja við í 8 tíma á dag en ég get það ekki, er það skortur á sjálfsaga? Jú ég held það - eftir að hafa rætt þetta aðeins við eina mér afar nákomna þá hef ég tekið ákvörðun. Fyrst ég get ákveðið að skokka þrisvar í viku þá get ég krafist þess af sjálfri mér að ég taki 8 tíma lærdómstörn á dag, eða er það ekki?
Þess vegna mun ég halda mun ítarlegt bókhald yfir það hvernig ég nýti tímann núna næstu daga, og það "bókhald" getur gefið mér vísbendingar um vinnulag mitt og með því að "rína" í það ætti ég að finna leiðir til að bæta mig.

Er farin út að hlaupa!
AMEN!
Líst vel á þetta hjá þér. Þú átt eftir að verða "úber" skipulögð eftir þessa rýningu :)

Gangi þér (eða skokki þér) rosalega vel :)
#1
30. september 2009 klukkan 12:59
Dugleg : )
#2
30. september 2009 klukkan 13:05
 
Sissaa
Langt síðan ég hef kíkt hér inn. Gamna að lesa allar þessar færslur og skða myndir.
Hafið það gott og haldið áfram að njóta! ;)
Kveðja,
Sissa & co.
#3
30. september 2009 klukkan 13:37
 
Sú ráðagóða
Hæ,
Það var einu sinni sem nágrannakonan mín sagði við mig: „þið þessar útivinnandi hafið það svo gott vegna þess að þið hafið svo mikið að gera að þið verðið að skipuleggja ykkur svo vel, því það er þannig að eftir því sem maður hefur meira að gera verður maður skipulagðari og þá hafið þið í rauninni miklu meiri tíma en við hinar“
Ef að þessi speki er sönn þá hefur þú kannski ekki nógu mikið að gera???
Ég verð þó að játa að það fauk aðeins í mig því þá var ég í skóla, vinna og með kýr.
Kveðja mamma
#4
30. september 2009 klukkan 15:41
 
Heiða
Ég er búin að gera plan fyrir okt.... Er að vona að það virki, annars líður mér alveg eins og þér!! finnst ég ekki læra nóg og er alltaf að standa upp til að gera ekki neitt :/
En ég vona að þú náir að skipuleggja þig betur ;)
Knús á ykkur
Kv. Heiða
#5
30. september 2009 klukkan 16:15
 
Árni Gísli litli bróðir
Já það eru aldeilis yfirlýsingar, telur þig ekki vera nógu skipulagða, veistu, stundum er ekki gott að vera OF skipulagður, passaðu þig á því líka!! :D Ég er búinn að prufa allt í kring um skipulagningu og kemst alltaf að því að vera hæfilega skipulagður er best!! heehehehehe
kv
Litli bró
#6
30. september 2009 klukkan 18:31
 
Sigga Júlla
Takk fyrir kæru vinir! Og já mamma þetta er kannski málið, þú hefur alltaf rétt fyrir þér!
#7
30. september 2009 klukkan 19:03
Regluleg slökun er nauðsynleg. Svo maður verði ekki vitlaus. Eru hinir nemendurnir gasalega gáfaðir og áhugasamir? En svo er líka eins gott að vinna þetta jafnt og þétt, segir sá sem alltaf lendir í tímahraki. Kveðjur, Gyða
#8
01. október 2009 klukkan 08:44
 
Hildur í Holti
Rosalega er ég stolt af því hvernig þú nærð að endurskoða sjálfan þig! Ég loka alltaf bara augunum og lít í hina áttina ;(
En það er rétt hjá þér að skipulagning er svarið og varðandi slökun þá hlýtur hún að þurfa sitt pláss innan skipulagsins líka. Ég ætla því að taka þig til fyrirmyndar og bókleggja fyrir mér hvernig planið er næstu daga.....ég kemst nebblega einhvernvegin aldrei yfir nema helminginn af því sem mér finnst að ég ætti að gera og þjáist svo af samviskubiti! Vonlaust....verð að breyta því!
Kveðja og stuðningur úr nýfallinni mjöllinni í Þistilfirði
#9
01. október 2009 klukkan 09:34

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.