Komin úr gönguferđ....og ég sá Holmenkollen
26. september 2009 klukkan 20:10
Ég fór í gönguferð í "Oslomarka" með Önnu Katrínu, Gunnu og Hilde. Tókum lestina frá Ås til Osló S og þar fórum við með T-bananum til Sognsvann sem er ein endastöðin í Osló. Gengum frá Sognsvann til Ullevållseter (hytta) til Kopperhaughytta til Frognerseteren. Forðuðumst "góða" vegi og fórum stíga-troðninga. Upp og niður brekkur í skógivöxnu landi, þetta tók vel í. Set myndir inn síðar, er frekar þreytt eftir þetta ferðalag en gangan var um 21 km. Góður dagur að baki.
Haukur og strákarnir höfðu það fínt, þeir keyrðu til Son og fóru út að borða á einhverjum stað við höfnina og síðan í sund, glaðir með daginn.
p.s. á leiðinni til baka (í strætó) eða frá Frogneseter og á leiðinni niður í bæ, sá ég Holmenkollen í návígi og þá meina ég þennan nýja sem er verið að gera og hefur farið margarmilljónir fram úr áætlunum. Langar mikið til að við skellum okkur í vetur og fylgjumst með keppni í skíðastökki á Holmenkollen!

Gunna
Eg er reyndar a thvi ad gangan hafi verid amk 20 km og ørugglega nær 25 (eda jafnvel 30) km...midad vid merkta stiga var hun 20 km, en eg held ad vid høfum farid krokaleidir a stundum... Sem var bara gaman ;o) Kannski betra ad taka med ser almenilegt kort næst ;o)
#2
28. september 2009 klukkan 11:13
Sigga Júlla
Já Gunna og gps tæki sem lá ofan í skúffu hér heima!!
#3
28. september 2009 klukkan 11:26
Það verður örugglega gaman að fara á skíðastökkskeppni á Holmenkollen :) Það er að minnsta kosti gaman að horfa á þetta fólk stökkva í sjónvarpinu, hlýtur að vera frábært svona "live" ;)
Kv. Margrét