Ađ aflokinni maistínslu og föstudagsblogg
25. september 2009 klukkan 05:36
Maístínslan gekk vel, við urðum hreinlega að hemja okkur í tínslunni, komum heim með 6,9 kíló af maís!! Einnig tíndum við nokkra kúrbíta, síðan keyptum ýmsilegt fleira af bóndanum; kartöflur, rófur, hvítkál, gulrætur, brokkoli, blómkál, púrrulauk og rauðlauk, auk krukku af besta hunangi sem ég hef smakkað.
Við borðuðum maísinn ferskann, (beint af plöntunni) og síðan grilluðum við nokkra um kvöldið, lögðum þá fyrst í bleyti (með blöðunum) og settum á grillið. Síðan er slatti í ísskápnum sem snæddur verður næstu daga og fullt í frystinum. Við fengum mjög góðar leiðbeiningar frá bóndanum hvernig við ættum helst að geyma maís en til að frysta þá verður maður að taka öll blöðin af og frysta sem allra fyrst til að hann haldi sér (sykrurnar verði ekki búnar að breytast í sterkju). Síðan leiðbeindi hann einnig með hvernig við ættum að geyma í ísskáp í nokkra daga en þá hefur maður blöðin á og leggur síðan í bleyti áður en maður grillar (svo blöðin brenni ekki) eða rífur blöðin af og sýður í 2-10 mín
Mér varð nú hugsað til pabba sem lifir enn á því þegar hann smakkaði ferskan maís í fyrsta sinn sem Inga frænka kom með frá Ameríku fyrir 40 árum.
Þegar við vorum á leiðinni frá maístínslunni sem er rétt utan við Dröbak (hinu megin frá) þá keyrðum við framhjá jarðarberjaökrum og okkur er farið að hlakka til að komast í jarðaberjatínslu í júní-júlí.
Já hér hefur hver árstíð sinn sjarma, haustið alla uppskeruna hvort sem er í jörðu eða á trjám, veturinn fyrir gönguskíðamenninguna og skógarferðir þar sem bál er kveikt og grillaðar pylsur, fiskepinner eða brauð í frostinu, vorin þegar vorlaukarnir blómstra og ávextatrén blómgast, sumarið þegar jarðberin koma og svona gengur þetta koll af kolli
Það er því um að gera að njóta þess og prófa þetta allt saman 
Á morgun ætla ég í gönguferð í Nordmarka (rétt norðan við Osló) með tveimur íslenskum stelpum, þeim Önnu Katrínu og Gunnu auk einnar norskrar sem ég veit ekki hvað heitir. Þetta er einskonar vísir af gönguhóp sem stefnir á að fara saman á Galdhöpiggen næsta sumar. Ætluðum að fara núna í september en það er bara svo langt að keyra að við nennum eiginlega ekki fara í svoleiðis ferð þ.e. keyra í 7 tíma, gista, ganga, gista, keyra í 7 tíma!!! Viljum hafa góðan tíma og þá mun gönguferðin verða farin í tengslum við lengra ferðalag eða útilegu í Jötunheima þar sem börn og menn koma einnig með.
Haukur og strákarnir ætla í sund á morgun en leikskólinn er með sundlaug á leigu í tæpan klukkutíma á laugardögum og við vorum búin að bóka okkur á morgun og aðra sex laugardaga fram að jólum
Annars er hefðbundinn föstudagur framundan, lærdómur hér heima hjá mér (enginn fyrirlestur, alltaf "frí" á föstudögum). Karlarnir mínir í skóla og vinnu og síðan pizzugerð í kvöld.
Góða helgi!
p.s. Edda og Þórunn, takk fyrir ábendingarnar