Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Skipulag morgundagsins....

23. september 2009 klukkan 19:50
Klukkan hringir klukkan 6:30 og þá taka venjuleg morgunverk við af ljúfum nætursvefni, klæða, útbúa nesti, kíkja á vefmiðlana og svo framvegis. Verð mætt í Sørhellinga klukkan 8 þar sem ég hitti hópinn minn sem ég er að fara að gera verkefni með en við ætlum að taka stuttan túr í skóginn og pæla í hvernig við gætum búið til þemadag fyrir skógareigendur og áhugafólk þar sem þemað er: "Hvordan virker skogbehandlingen på biologi og produksjon?" Það verður örugglega skemmtilegt að vinna þetta verkefni en því verður skilað um miðjan nóvember. Þegar við verðum búin að fara í þessa "örferð" út í skóg (örugglega ekki sú fyrsta) þá er fyrirlestur í tvo tíma og eftir það fer ég heim og fæ mér næringu og skokka. Fimmtudagar eru nefnilega skokkdagar. Ef ég held rétt á spöðunum ætti ég að ná að lesa eitthvað áður en Haukur og strákarnir koma heim því það er búið að plana að bruna HINGAÐ til að tína maís í soðið. Laughing
Glæsilegt plan :) Gangi ykkur vel í maístínslu :)
#1
24. september 2009 klukkan 07:52
 
mundu bara að salta EKKI suðuvantið - svolítinn sykur er hins vegar fínn og svo smjör og salt um leið og borðað
Fróðleikur sem ég fékk fyrir nokkru síðan og svínvikrar (enda frá landi maísins)
#2
24. september 2009 klukkan 19:19
 
Þórunn Harðar
Ohh, það hljómar ekkert smá vel þetta með maísinn. Ég vil annars benda á það að það er ekki þörf á að sjóða nýjan maís, hann er ótrúlega góður nagaður beint af stönglinum; sætur og safaríkur. Verði ykkur að góðu,
kremjur frá okkur öllum hér í Sóltúni 14.
#3
24. september 2009 klukkan 23:30

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.