Gott að sjá blogg, ég var farin að örvænta. Nei djók.
Hafðu það gott kroppur
Kominn tími á nýja færslu?
22. september 2009 klukkan 10:50
Síðan ég bloggaði síðast hefur ýmsilegt gerst hér á heimilinu.
Má þar fyrst nefna að á föstudaginn var lokað fyrir internetið hjá okkur og þegar ég komst í aðra tölvu um helgina komst ég að hverju þetta sætti. Jú það hafði einhver á heimilinu verið að downloada mynd af netinu og vorum við (Stefán) gripinn af eigandanum (Paramount pictures). Tölvumennirnir urðu að fá tölvuna til að skoða hvað væri í henni og eyða tilteknum "fæl"
sögðu mér svo að nú væri ég komin á svarta listann hjá þeim og ef þetta gerist aftur megi ég búast við að lokað verði fyrir netið í nokkrar vikur!! Það viljum við ekki og Stefán hefur lofað að hætta að downloada.
Ég hef komist vel á skrið með að gera hlaupin að reglu hjá mér og það að fara fast 3 svar í viku er bara gott og allt auka er enn betra - ég ÆTLA að ná markmiðunum mínum
Helgin var róleg, á föstudagskvöldið fórum við til Bríetar og Björns og spjölluðum um heima og geima, komumst að því enn og aftur hvað heimurinn er lítill, Silla ef þú lest þetta þá var Bríet ein af þeim sem skipulögðu "göngum gegn slysum".
Við fórum í verslunarferð til Ski á laugardaginn og fengum okkur Kebab í hádeginu. Ég komst að því að þann mat ætla ég ekki að borða oftar en ég hef einu sinni áður smakkað Kebab og þá fékk ég í magann og líka núna. Næst þegar það verður farið þá ætla ég að koma mér fyrir á kaffihúsi á meðan þeir karlarnir fara í Kebab!!!
Á laugardagskvöldið komu Stína frænka og Ib kærastinn hennar (búa í Askim) og við grilluðum og áttum með þeim alveg frábært kvöld.
Á sunnudaginn fórum við Haukur með Þórði Loga í afmæli en tveir félagar hans á leikskólanum héldu upp á afmælin sín saman úti í skógi í grillhyttu. Það voru grillaðar pylsur, svo var boðið upp á köku og farið í ratleik og leikið í skóginum.
Við urðum alveg heilluð af grillhyttunni og erum að spáí að byggja okkur svoleiðis heima á Íslandi - hvar sem við endum eftir tvö ár...hér getið þið séð mynd.....
Þetta er nefnilega algjör snilld. Svo ég haldi áfram að láta mig dreyma þá sé ég fyrir mér að það verði einnig hægt að vera með n.k. eldstæði utan við - þannig að möguleikarnir gætu verið ýmiskonar á svæðinu.
Jæja, læt þetta duga í bili - verður vonandi stutt í næsta blogg.
Afmælisbörn dagsins frá sérstaka kveðju frá mér: Steinunn og pabbi TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN!!
Smá "uppfærsla" hálftíma seinna: Gleymdi að segja að við keyptum okkur þvottavél um helgina, kostaði 500 kr norskar og fengum hana heim að dyrum, hún verður búin að borga sig upp eftir rúma tvo mánuði, miðað við hvað ég er að borga í þvottahúsinu hér. Þetta er svakagræja, topphlaðin Whirlpool sem fer ótrúlega lítið fyrir
Má þar fyrst nefna að á föstudaginn var lokað fyrir internetið hjá okkur og þegar ég komst í aðra tölvu um helgina komst ég að hverju þetta sætti. Jú það hafði einhver á heimilinu verið að downloada mynd af netinu og vorum við (Stefán) gripinn af eigandanum (Paramount pictures). Tölvumennirnir urðu að fá tölvuna til að skoða hvað væri í henni og eyða tilteknum "fæl"
sögðu mér svo að nú væri ég komin á svarta listann hjá þeim og ef þetta gerist aftur megi ég búast við að lokað verði fyrir netið í nokkrar vikur!! Það viljum við ekki og Stefán hefur lofað að hætta að downloada.Ég hef komist vel á skrið með að gera hlaupin að reglu hjá mér og það að fara fast 3 svar í viku er bara gott og allt auka er enn betra - ég ÆTLA að ná markmiðunum mínum

Helgin var róleg, á föstudagskvöldið fórum við til Bríetar og Björns og spjölluðum um heima og geima, komumst að því enn og aftur hvað heimurinn er lítill, Silla ef þú lest þetta þá var Bríet ein af þeim sem skipulögðu "göngum gegn slysum".
Við fórum í verslunarferð til Ski á laugardaginn og fengum okkur Kebab í hádeginu. Ég komst að því að þann mat ætla ég ekki að borða oftar en ég hef einu sinni áður smakkað Kebab og þá fékk ég í magann og líka núna. Næst þegar það verður farið þá ætla ég að koma mér fyrir á kaffihúsi á meðan þeir karlarnir fara í Kebab!!!
Á laugardagskvöldið komu Stína frænka og Ib kærastinn hennar (búa í Askim) og við grilluðum og áttum með þeim alveg frábært kvöld.
Á sunnudaginn fórum við Haukur með Þórði Loga í afmæli en tveir félagar hans á leikskólanum héldu upp á afmælin sín saman úti í skógi í grillhyttu. Það voru grillaðar pylsur, svo var boðið upp á köku og farið í ratleik og leikið í skóginum.
Við urðum alveg heilluð af grillhyttunni og erum að spáí að byggja okkur svoleiðis heima á Íslandi - hvar sem við endum eftir tvö ár...hér getið þið séð mynd.....
Þetta er nefnilega algjör snilld. Svo ég haldi áfram að láta mig dreyma þá sé ég fyrir mér að það verði einnig hægt að vera með n.k. eldstæði utan við - þannig að möguleikarnir gætu verið ýmiskonar á svæðinu.Jæja, læt þetta duga í bili - verður vonandi stutt í næsta blogg.
Afmælisbörn dagsins frá sérstaka kveðju frá mér: Steinunn og pabbi TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN!!
Smá "uppfærsla" hálftíma seinna: Gleymdi að segja að við keyptum okkur þvottavél um helgina, kostaði 500 kr norskar og fengum hana heim að dyrum, hún verður búin að borga sig upp eftir rúma tvo mánuði, miðað við hvað ég er að borga í þvottahúsinu hér. Þetta er svakagræja, topphlaðin Whirlpool sem fer ótrúlega lítið fyrir
Bebba
#2
22. september 2009 klukkan 11:45
Til lukku með þvottavélina :) Munar heilmiklu að þurfa ekki að hafa pláss fyrir framan hana til að setja í hana :)
#3
22. september 2009 klukkan 14:38
Rakel
Þvottavélar eru náttúrulega algjört möst. Til lukku með hana :-) Sparar þér örugglega mikinn tíma og vinnu að þurfa ekki að hlaupa langar leiðir til að setja þvottinn í og taka hann úr.
Var á aðalfundi LSE um helgina og hitti foreldra þína. Annars allt gott að frétta héðan. Ég er svolitið forvitinn að vita hvernig gengur með norskuna?
Bestu kveðjur í bæinn og takk fyrir skemmtilegar bloggfærslur.

#4
22. september 2009 klukkan 17:23
Sigga Júlla
Rakel: Det går kjempefint med norsk språk, jeg forstår nesten alt i foreleningene men det kan bli vanskiligt at snakke og forstå oppgavene, men det kommer tror jeg ;)
#5
22. september 2009 klukkan 18:32
Heiðarleg netnotkun eða ekkert samband.
Þetta hljómar eins og þeir ættu að fá afnot af manninum sem tilkynnir á myndböndum að þetta sé bannað börnum með alvöruþunga og horfir stíft á þig af skjánum.

#6
23. september 2009 klukkan 10:30
Sigga...det å snakke norsk blir ikke noe problem med litt alkohol i kroppen :D Det er ihvertfall min erfaring ;) Men da må du vel feste sammen med nordmenn... :) Lykke til!!
Ellers så skrev du helt uten feil :) Så flink du er! :D
Klem, Margret

#7
23. september 2009 klukkan 13:12
Þú ert alltaf jafn dugleg að hlaupa, sé ég... :) Bjóst svo sem ekki við öðru, dugnaðardingulharpan sem þú ert :)
Allt fínt hjá mér og okkur...er ekki eins dugleg að hlaupa og þú, hugga mig við að MRL tímarnir hljóti nú að gera eitthvað...mataræðið svona upp og ofan, en vigtin í morgun sagði 800 g í mínus þannig að þetta potast...er frekar sátt við hana þar sem ég fékk mér smá Bailey´s í vikunni og borðaði smá nammi plús það að það var keypt pizza í matinn í gærkvöldi.
Hlakka svo bara til að lesa næsta blogg :D
Knús til ykkar