Hjól og heilbrigđi!!
17. september 2009 klukkan 06:36
Stefán Snær er búinn að fá hjól. Það var farið til Ski í gær í búð sem heitir XXL sem er risa sport og útivistarverslun. Þar var keypt þetta líka flotta hjól HÉR drengurinn er í skýjunum með þessi kaup og fóru hann og Haukur í smá hjólatúr í gærkvöldi 
Ég hef alltaf gleymt að segja frá einu sem mér finnst að mætti taka upp á Íslandi. Fyrir nokkrum árum samþykkti norska þingið að í öllum unglingaskólum í Noregi ættu nemendur að fá ókeypis ávexti og grænmeti. Þannig að í löngu frímínútunum sem eru tvisvar á dag (fyrir og eftir hádegi) liggja frammi bakkar með eplum, banönum, plómum, gulrótum og mörgu öðru og meiga þau borða eins og þau vilja af þessu. Held að þetta sé líka í boði í hádeginu. Finnst ykkur þetta ekki magnað?
Annað sem er frábært í skólanum hans Stefáns er að það er harðbannað að fara út af skólalóðinni - það að ætla að skreppa út í búð/sjoppu er BANNAÐ ef það er gert þá missir maður punkta og það vill maður ekki. Þetta virða allir og það virðist vera lítið mál, hér er sko AGI en allt mjög afslappað samt sem áður.
Fór á foreldrafund um daginn og þá talaði kennarinn um ónógan svefn hjá krökkunum og nefndi það að á þessum aldri þyrftu þau 8-9 tíma svefn. Þannig að það var bara ákveðið að foreldrar stæðu saman í því að krakkarnir færu snemma í hátttinn. Klukkan 10 skal það vera! Enda veitir þeim ekkert af hvíldinni, eins og Stefán Snær hann fer 2 km leið í skólann þannig að hann er að fá fasta hreyfingu á dag uppá 4 km. Fyrir utan allt annað en í íþróttum er mikið lagt uppúr hlaupum þannig að þar bætist slatti við. Kennarinn hans er maraþonhlaupari og mjög meðvituð um heilbrigða lífshætti sem hún smitar inní bekkinn. Allir fara snemma að sofa, drekka mikið vatn og eru duglegir í ávöxtunum og grænmetinu í skólanum!
Svo langar mig til að segja aðeins frá leikskólanum hans Þórðar Loga, en núna þegar það haustar þá er eitt bannorð það er BÓMULL, börnin eiga að vera sem mest í ullarnærfötum og sokkum úr ull en hér er hægt að fá þunna ullarsokka og nærföt í öllum búðum. Svo eiga þau að vera sem mest í þægilegum fatnaði líkt og bara venjulegum útivistarfatnaði, ull og flís en alls ekki BÓMULL. Þetta er nú alveg rétt, við erum að fara að færa okkur meira í að kaupa t.d. stuttermaboli úr 100% merinoull því þó það sé heitt þá gerir það ekkert til og þegar kólnar þá snögg kólnar manni ekki eins og gerist stundum þegar maður er búinn að svitna í bómullarbolum
Við hittumst nokkrar í gær til að ræða Galdhöpiggen ferð, held við breytum planinu, gerum frekar góða fjölskylduferð úr því á næsta ári því við erum sko 7-8 tíma að keyra uppeftir!!! Þannig að nú erum við að spá í fjallgöngu eitthvað nær okkur en við erum búnar að ákveða allavega dagsetninguna - það er kostur
Í lokin þá segi ég takk mamma og pabbi fyrir sendinguna, (ef þið lesið þetta áður en ég næ að hringja í ykkur) hangikjötsrúllan kom skemmtilega á óvart!!!
Eigið góðan dag.
p.s. er að fara í skólann, ætla að skokka seinna í dag eða í kvöld

Frábært þetta með ávextina og gott að foreldrar allra í bekknum komu sér saman um að samræma háttatímann :) Þyrfti að gera það hérna líka :)
Þetta með ullarnærfötin er snilld...(segi ég sem sendi son minn bara í stuttermabol og peysu í leikskólann, ekki ullarnærfötunum sem hann var í hérna um daginn ;þ) Svínvirkar alveg og það eina sem dugar í þessum vetrarkulda þarna úti. Getur orðið glettilega kalt þarna á veturna.
Knús á ykkur og verði ykkur að góðu :D