Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Matarćđisblogg

16. september 2009 klukkan 08:54
Hef nú ekkert verið mjög nákvæm á mataræðinu (eða sko þessu danska). Hef ákveðið að prófa skynsamlegu leiðina mína sem hentar mér vel.
Sneiði fram hjá sykri, nema á laugardögum, þá er nammidagur. Föstudagskvöld eru pizzukvöld.
Borða alltaf AB mjólk og kornfleks+ávöxt á morgnana.
Grænmeti, brauð eða jógúrt í hádeginu.
Heit máltíð á kvöldin með miklu grænmeti.
Ávextir inn á milli.
Vigta lítið, drekk nóg vatn
.......................og ætla bara að sjá hvert þetta leiðir mig.
Hreyfingin er í góðum gír, kemst ekki upp með annað hér þar sem ég geng í skólann og flestra minna erinda hér í bænum.
Skokk/ganga er fast þrisvar í viku og allt annað er því bónus Cool
Léttingur vikunnar  ca 300 grömm.
Það er ég bara mjög ánægð með!!!

EN STELPUR HVERNIG GENGUR YKKUR?
 
Bebba
já ég verð að kommenta, þó ég hafi ekki verið alveg jafn dugleg og þú. Enda er það oft eriftt góða mín....
En mataræðið gengur þokkalega, ég hef ekki heldur fest mig í danska en hann er alltaf í undirmeðvitundinni. Morgunmaturinn er í góðum gír, ab mjólk og cheerios og oftast ávöxtur (þarf að festa ávöxtinn þarna líka). Svo hef ég farið heim núna undnafari í hádeginu, þá verið nokkuð dugleg í grænmetinu en næ samt ekki dönskum skammti held ég og fæ mér svo skyr, kjöt eða fisk afgang frá deginum á undan með því. Kvöldin eru fín og öll að detta í gírinn. Sem sagt mataræðið er allt að koma til. Af hreyfingarmálum er ekki eins gott að frétta, ég er reyndar byrjuð í blakinu aftur en það er allt... ég er að reyna að koma mér út, en aðeins of dugleg að finna afsakanir. En þetta er að koma nú er bara að hlaða karlinum í ipodinn og drífa sig út
#1
16. september 2009 klukkan 09:10
 
Ása D.
Hlaða karlinum í ipodinn Bebba - ertu búin að minnka Tryggva svona svakalega ???!!! Hafðu endilega samband við mig ef þig vantar útivistarfélaga - ég er formaður útivistarklúbbsins og stefni á að hafa fastan póst á miðvikudagskvöldum kl. 20.00 (ekki heilagt - gæti breyst) - þar sem þrammaður verður stóri hringurinn á Hvanneyri.....maður verður víst að sýna lit ekki satt???!!!

Heyrðu mér sýnist þú nú vera alveg jafn dugleg og venjulega Sigga mín - og mér líst svakalega vel á þetta plan hjá þér - ég er að komast upp úr átkasti sem er búið að vara í nokkrar vikur - og held bara að ég sé á leið eitthvað uppímót heheh.... en nú verð ég að fara að huga í alvöru að því að borða hollt og gott til að auka frjósemina mar......þetta fer alveg að bresta á!!!

Verðum í bandi - nú er um að gera að vera duglegar að peppa hinanden þvers og kruss yfir netið!!!

knús og kremjur
Ása þarna uppi....
#2
16. september 2009 klukkan 09:22
 
Margrét
Gengur ágætlega hérna megin eins og ég sagði þér áðan :) Er ekki 100% á danska enn en það kemur. :) Hef fulla trú á því!
Morgunmaturinn samanstendur af ristuðu brauði og cheerios í skál...gleymi yfirleitt ávextinum en það hlýtur að festast í minninu einhverntíma ;) Hádegismaturinn hefur verið eitthvað fljótlegt hingað til, ristað brauð með laxi, sýrðum rjóma og rauðlauk og í gær fékk ég mér ristað brauð með reyktu kjúklingaáleggi, sýrðum rjóma, rauðlauk og papriku...hrikalega gott...smurði brauðið með smá léttmajonesi! Borðaði svo grænmeti með. Þarf svo að fara að skipuleggja allan daginn svo ég geti verið enn danskari en núna :)
Hreyfingarlega séð þá er ég að hlaupa tvisvar í viku í nesinu og byrjaði svo í MRL-æfingunum hjá Önnu Berg í gær. Mæli með því, Bebba og Ása Dóra! Þetta er á þriðjudögum og fimmtudögum frá 19-19:55 og svo eru þó nokkrar sem fara í blak strax á eftir!!

En...gangi ykkur öllum vel :) Við getum þetta sko alveg :D
#3
16. september 2009 klukkan 09:55
 
Sólrún Halla
Gaman að heyra aðeins frá ykkur! Þið eruð alveg að standa ykkur, þetta fer alveg að kikka inn. Ég er einmitt líka byrjuð í MRL hjá Önnu Berg a.m.k. á þriðjudögum en kemst ekki alltaf á fimmtudögum, en núna ætla ég að fara að ganga helst á morgnana og svo verður líklega þrusubrennslu á laugardaginn þegar fótboltamótið til heiðurs Sverri Heiðari verður. En Sigga mín ég vona að þú hafir það gott og ég veit að þú ert að standa þig þarna úti.

Bið kærlega að heilsa þér og fólkinu þínu og hafið það rosalega gott
kv. Solla
#4
16. september 2009 klukkan 11:38
 
Ţórunn Harđar
Jæja skvísur, frábært hjá ykkur. Ég er að fara pínu nýja leið í mínu átaki, er semsagt ekki á danska en sleppi t.d. sykri og hveiti. Byrjaði s.l. laugardag og gengur þrusuvel. Ætla samt að vigta mig bara einu sinni í mánuði þannig að ég hef engar léttingstölur núna. Hef ekki ætlað mér neitt hreyfingaplan í bili, má ekki vera of stór biti í einu þannig að það bíður.
Og áfram svo stelpur!!!

Knús og kossar frá mér :-)
#5
16. september 2009 klukkan 19:52
 
Margrét
Þórunn...! Hvað ætlarðu að gera í saumaklúbbum????!!!!! ;) Núna verður maður að finna eitthvað alveg nýtt til að hafa :D Kemur auðvitað ekki annað til greina en að styðja þig í þessu, bæði í orðum og gjörðum :)

Knús til baka :)
#6
16. september 2009 klukkan 23:03
 
Ţórunn H.
Já, það er von þú spyrjir, en ég mun ekki borða neitt í saumaklúbbunum, svo ég þarf aldeilis að herða mig við prjónaskapinn ;-)
#7
17. september 2009 klukkan 14:37
Æðislega gaman að lesa þetta hjá ykkur, þið eruð svo duglegar allar þarna á Hvanneyri! Ég á mér draum að flytja aftur þangað - en það er bara draumur!

Ég er ekki í neinu átaki eins og er, en er með barn á brjósti ennþá og hún étur mömmu sína hægt og bítandi - sem er gott mál :)

Hef verið oft oft á danska og finnst það bara besti kúr sem hægt að hugsa sér, virkar alltaf.

Vonandi líður ykkur vel úti í Ási Sigga, bið að heilsa karlinum.

Kv. Elin
#8
21. september 2009 klukkan 11:10

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.