Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Þriðjudagur

15. september 2009 klukkan 15:09
Jæja í dag er 15. september, VÁ hvað tíminn flýgur!!! Sjötta vikan í skólanum og þvílíkur munur á statusnum á manni Cool
Nú bíðum við bara eftir skattkortinu hans Hauks svo hann geti farið að fá útborgað, svo bíðum við líka eftir debetkortinu hans svo hann geti farið að nota peningana sem hann fær útborgaða Wink
Ég er búin að skila inn umsókn um barnabætur og svo er ég líka búin að sækja um Pin-númer fyrir alla fjölskylduna svo við getum farið inn á heimasíðu á netinu þar sem við veljum okkur heimilislækni, erum komin með nokkur heilræði varðandi lækna, en það er misjafnlega látið af þeim hér líkt og gerist oft annarsstaðar. Þetta er endalaust, sækja um hitt og sækja um þetta - það er sko ekki þannig að þegar kennitölurnar eru komnar að þá gerist allt af sjálfu sér, það er sko öðru nær!! Þannig að ég er dauðfegin að vera ekki í 100% námi þessa önn því ég veit ekki hvernig maður hefði farið að annars! Pappírsvesen, bjakkkk, ég þoli það ekkiUndecided
Bjartari tímar eru framundan því ég held að maður eigi ekki að þurfa svo mikið að vesenast í öllu þessu nema einu sinni.

Annars er allt gott héðan, við ætlum að kaupa hjól handa Stefáni í vikunni - ekki seinna vænna því hann er að fara í hjólatúr með bekknum sínum á föstudaginn.
 
Margrét
Það fyrsta sem ég hugsaði þegar ég las um hjólatúrinn var: "ætla þau í hjólatúr þegar það er spáð roki og rigningu??" ;) Fattaði samt strax að það er auðvitað miklu betra veður hjá ykkur en okkur :) Haustið er að vinna upp þurrka sumarsins, það hefur rignt að manni finnst, heillengi :)

Gangi ykkur vel í að eiga við skriffinnskuna :) Það er kannski ekki nema von að þetta sé kallað skriffinnska...finnska er náttúrulega óskiljanlegt tungumál ;)

Kv. Margrét
#1
16. september 2009 klukkan 08:56

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.