Vona að þessi buxnastíll verði kominn úr tísku þegar mínir strákar verða eldri ;)
En, já, tíminn líður skelfilega hratt! Þessi vetur verður búin á morgun og þið verðið komin heim hinn daginn ;) Úff, það þýðir að jólin eru í kvöld og ég á eftir að gera ALLT!!! :D Nei, segi bara svona ;)
Knús, Magga...
hvað er málið....
14. september 2009 klukkan 06:09
....hjá unglingum sem eru með buxurnar á hælunum??? Í mínu ungdæmi voru um tíma svokallaðar kúkabuxur í tísku en þær voru þó girtar upp í mittið þó klofið væri haft svolítið sigið!!!
Annars er í nógu að snúast. Ér er að leggja lokahönd á undirbúning fyrir smá feltvinnu í skógmælingakúrsinum. Síðan er það á dagskrá að fara út að hlaupa og skila inn umsókn um barnabætur til NAV.
Í dag eru þingkosningar í Noregi og ætli maður reyni ekki að fylgjast með talningunni eitthvað fram eftir kvöldi.
Enn ein vikan að hefjast og alltaf hugsa ég hvað tíminn líður hratt - alveg með ólíkindum, njótið dagsins

Margrét
#2
14. september 2009 klukkan 09:51
Vikurnar líða ansi hratt... kominn miður september. Hér fer að verða ansi haustlegt, fyrsta haustrokið var í nótt, en samt heitt svo að laufin haldast ennþá á trjánum. Vona bara að við fáum að njóta haustlitanna sem lengst frameftir hausti.
Knús á ykkur :)