Aðeins af norsku skipulagi
11. september 2009 klukkan 16:45
Í gær kom miði frá leikskólanum hans Þórðar en þannig er að hér skreppur maður ekki í sund eins og heima heldur er það meiriháttar mál að finna sundlaug og þegar hún finnst þá kostar það hvítuna úr augunum að fara. Þannig er að þessi yndislegi leikskólaeigandi (Björg) sem rekur Vestby naturbarnehage hefur gert samning við Cato-senteret (heilsuhæli) í Son um að fá tíma í sundlaug fyrir leikskólabörnin og fjölskyldur þeirra flesta laugardaga fram að jólum. Þá er þetta þannig að við getum "bókað" á okkur vissa laugardaga sem við verðum að sjálfsögðu að skipuleggja núna hverjir verða og ekki nóg með það heldur tímasetningar að deginum en hægt var að velja á milli að vera kl 14:15 til 15:00 eða 16:00 til 16:45. Þannig að eftir að hafa pælt aðeins í þessu þá ætlum við að miða við að nýta okkur þetta tilboð, alls sjö sinnum fram að jólum. Fyrir þetta borgum við 100 kr norskar pr. skiptið fyrir alla fjölskylduna, þannig að þetta verða 700 krónur í heildina. Ég get sagt ykkur það að þetta þykir ekki dýrt ef miðað er við sundhöllina í Askim þar sem það kostar 130 kr um helgar fyrir EINN fullorðinn!!!!
Annar miði kom í gær eða rétta sagt afmælisboð. Þórði Loga er semsagt boðið í afmæli 20. september og þá er ekki seinna vænna en að senda út afmælisboð með níu daga fyrirvara. Það verður spennandi því afmælið verður haldið í grillhyttu
Það er að alltaf smátt og smátt að koma mynd á heimilið okkar, fórum í dag á loppemarket og keyptum sessur á eldhússtólana, náttborð fyrir Stefán og eitt loftljós og einn vegglampa, já-já þetta er allt að koma
Hreyfingarblogg:
Ég hef ákveðið að breyta skipulaginu aðeins, ætla að breyta formlegum föstudagsskokkdegi í laugardagsskokk. Fann ansi skemmtilega leið í morgun sem er rúmlega 3 km en út frá henni væri hægt að gera allskonar variasjónir, þannig að maður skokkar út götuna, um landbúnaðarsvæði, í skóginum, á möl á malbiki, upp brekku og niður brekku - já fjölbreytt mjög.
Mataræðið:
....Er í góðum málum en hef enn ekki fundið baðvog, þarf að fara eitthvert lengra til að kaupa eina slíka, geri það við tækifæri

Held ég hafi svo ca tvisvar farið í sund í Noregi, bæði skiptin fyrri veturinn sem ég bjó þar, sem sagt ´91 - ´92!!
Og á ég að trúa því að Eric Johansen selji ekki baðvogir???????!!!!!!!! Ég sem stóð á því fastar en fótunum að þar væri hægt að kaupa allt milli himins og jarðar :O Svo bregðast krosstré sem önnur tré ;)
Já og þú þarft svo að uppfæra myndirnar af íbúðinni eftir innkaupin á öllum flóamörkuðunum ;)
Knús frá okkur :)