Skóla- kennitölu-hlaupa- og matarćđisblogg
09. september 2009 klukkan 10:08
Mikið leið mér nú vel í skólanum í morgun, ég hugsaði oft og títt nokkur ár til baka þegar ég var í skógmælingakúrsinum hjá Arnóri og skildi ekki neitt og upplifði tja minn erfiðasta kúrs sem ég hef tekið á Hvanneyri. Sá kúrs hefur semsagt reynst frábær undirbúningur fyrir báða skógarkúrsana sem ég er í núna. Einnig hafa þeir dagar sem ég hef aðstoðað Arnór nú í seinni tíð reynst mér líka alveg frábær undirbúningur.
Ég hef tekið ákvörðum um að skrá mig úr norksukennslunni, hún var ekkert að gera neitt fyrir mig. Hann er eiginlegaætlaður þeim sem hafa kínversku eða eitthvað viðlíka sem tungumál
Þannig að ég ætla frekar að vera dugleg að grípa í ýmsa reifara á milli þess sem ég les skólabækur. Svo skiptir það verulega miklu máli að vera innan um fólk því það að skilja er ekkert endilega vandamálið, það er frekar að koma hugsunum sínum í orð - en þetta kemur allt.
Ég fór á foreldrafund í skólanum hans Stefáns í gærkvöldi og það var alveg ljómandi, mér líst vel á kontaktkennarann hans og einnig hina foreldrana. Þetta verður mjög spennandi skólaár
Eitt sem mér þykir mjög sniðugt, það er að núna framað haustfríi þá fá krakkarnir kynningu á frösku, þýsku og spænsku. Eftir haustfrí velja þau sér svo eitthvert af þessum tungumálum eða engelsk fordypning. Þau verða þá næstu þrjú ár í því sem þau velja sér, ásamt norsku og ensku. Stefán ætlar að velja engelsk fordypning, þvi hann vill verða megagóður í ensku en til vara setur hann þýsku. Held þetta sé mjög sniðugt hjá honum, því þegar hann kemur heim verður hann þá með góðan enskugrunn, auk norskunnar 
Kennitölurnar eru komnar í hús. Okkur var farið að lengja verulega efitr þeim og eftir að hafa hringt í konu út í bæ og spurst fyrir s.l. mánudag leit allt út fyrir að allt hefði týnst í pósti (þ.e. frá skrifstofunni í Ski til aðalskriftstofunnar) og við þyrftum því að sækja um aftur. Mikið varð ég nú pirruð og svartsýn við þetta!! Þyrftum við að bíða í aðrar fjórar vikur eða hvað???? Það sem pirraði okkur mest var líka að helv....kerlingin á skrifstofunni í Ski var svo ansk....leiðinleg og þá er nú best að lýsa fyrir ykkur heimsókn okkar á skateatatet í SKi þann 5. ágúst. Sko þetta var nú ósköp fallegur dagur, sólin skein og við voða spennt nýkomin á svæðið og vegna þess hvað það tekur langan tíma að fá kennitölur (upplýsingar frá íslendingum) hér þá ákváðum við að þetta yrði okkar fyrsta verk. Við keyrðum til Ski, fundum skrifstofuna og æddum inn og að afgreiðsluborði, þar sem tvær konur sátu - tek það fram að enginn kúnni var þarna. Konan sem seinna reyndist þurfa að afgreiða okkur leit á þessi viðundur (okkur) sagði ekki neitt heldur benti með handapati að við þyrftum að taka miða, öðruvísi gæti hún ekki afgreitt okkur!! Ok okkur fannst þetta alveg merkilegt, kerlingin var mjög óþolinmóð og nennti eiginlega ekki að afgreiða okkur en það hafðist á endanum. Við fórum, glöð yfir að þá væri þetta afstaðið, nú þyrftum við bara að bíða í 3-4 vikur og þá væri allt klárt, kennitölurnar kæmu í pósti.
Við biðum og biðum og biðum og biðum!! Ekkert kom og það endaði með að Hrafnhildur hringdi á mánudaginn fyrir okkur (svona til að komast hjá misskilningi) með áðurgreindum upplýsingum.
Hvað um það eftir skóla í gær fórum við Hrafnhildur til Ski, tókum Eyjólf með því hann þurfti að sækja um kennitölu. Eiginlega var ég með hnút í maganum yfir þvíað ef þessi kerlingarbeygla væri þarna - en mikið varð mér létt, þarna voru tvær konur og hvorug þeirra var beyglan. Mér létti mjög og við gengum samviskulega inn og TÓKUM MIÐA og fengum afgreiðslu og þá reyndust kennitölurnar vera komnar þannig að konan prentaði skjalið út og afhenti mér. Þannig að í leiðinni sótti ég um skattkort fyrir Hauk og það kemur í næstu viku. Næsta mál á dagskrá er að skrá okkur hjá heimilislækni, skrá okkur inn einhversstaðar til að fá barnabætur, stofna bankareikning og ýmislegt fleira sem staðið hefur á vegna kennitöluleysis.
Þetta var semsagt sagan um kennitölurnar okkar
Hlaupablogg:
Hitti Bríeti nágrannakonu mína í morgun, hún ætlar að verða samferða í skokkinu og síðan er planið að fara í þreksal einhverja aðra daga til að styrkja sig. Ekkert skokk í dag en það verður í fyrramálið, samkvæmt plani
Annars verð ég að segja ða það eru mikil plön í gangi hjá okkur íslensku konunum hér, legg aðeins eitt í einu á ykkur.... Galdhöpiggen 2469 m hæsta fjall Noregs....legg ekki meira á ykkur í bili.
Mataræðisblogg:
Jæja þá er fyrsti dagur "100% ddv" hafinn.
Er að spá í að vera ekki með neina tölur opinberar aðrar en +/- og svo set ég mér markmið.
Þannig að fyrsti vigtunardagur er í dag en raunverulegar +/- tölur fara ekki að birtast fyrr en eftir viku. Þið sem ætlið að fylgja mér í þessu ráða að sjálfsögðu sjálfir hvernig þeir fara með sínar tölur. Ég get auðvitað skráð +/- tölur inn í töflu hjá minni - látið mig bara vita.
Tölutaflan verður hér til vinstri undir heitinu "Tölfræði"
Ég hef tekið ákvörðum um að skrá mig úr norksukennslunni, hún var ekkert að gera neitt fyrir mig. Hann er eiginlegaætlaður þeim sem hafa kínversku eða eitthvað viðlíka sem tungumál
Þannig að ég ætla frekar að vera dugleg að grípa í ýmsa reifara á milli þess sem ég les skólabækur. Svo skiptir það verulega miklu máli að vera innan um fólk því það að skilja er ekkert endilega vandamálið, það er frekar að koma hugsunum sínum í orð - en þetta kemur allt.Ég fór á foreldrafund í skólanum hans Stefáns í gærkvöldi og það var alveg ljómandi, mér líst vel á kontaktkennarann hans og einnig hina foreldrana. Þetta verður mjög spennandi skólaár
Eitt sem mér þykir mjög sniðugt, það er að núna framað haustfríi þá fá krakkarnir kynningu á frösku, þýsku og spænsku. Eftir haustfrí velja þau sér svo eitthvert af þessum tungumálum eða engelsk fordypning. Þau verða þá næstu þrjú ár í því sem þau velja sér, ásamt norsku og ensku. Stefán ætlar að velja engelsk fordypning, þvi hann vill verða megagóður í ensku en til vara setur hann þýsku. Held þetta sé mjög sniðugt hjá honum, því þegar hann kemur heim verður hann þá með góðan enskugrunn, auk norskunnar 
Kennitölurnar eru komnar í hús. Okkur var farið að lengja verulega efitr þeim og eftir að hafa hringt í konu út í bæ og spurst fyrir s.l. mánudag leit allt út fyrir að allt hefði týnst í pósti (þ.e. frá skrifstofunni í Ski til aðalskriftstofunnar) og við þyrftum því að sækja um aftur. Mikið varð ég nú pirruð og svartsýn við þetta!! Þyrftum við að bíða í aðrar fjórar vikur eða hvað???? Það sem pirraði okkur mest var líka að helv....kerlingin á skrifstofunni í Ski var svo ansk....leiðinleg og þá er nú best að lýsa fyrir ykkur heimsókn okkar á skateatatet í SKi þann 5. ágúst. Sko þetta var nú ósköp fallegur dagur, sólin skein og við voða spennt nýkomin á svæðið og vegna þess hvað það tekur langan tíma að fá kennitölur (upplýsingar frá íslendingum) hér þá ákváðum við að þetta yrði okkar fyrsta verk. Við keyrðum til Ski, fundum skrifstofuna og æddum inn og að afgreiðsluborði, þar sem tvær konur sátu - tek það fram að enginn kúnni var þarna. Konan sem seinna reyndist þurfa að afgreiða okkur leit á þessi viðundur (okkur) sagði ekki neitt heldur benti með handapati að við þyrftum að taka miða, öðruvísi gæti hún ekki afgreitt okkur!! Ok okkur fannst þetta alveg merkilegt, kerlingin var mjög óþolinmóð og nennti eiginlega ekki að afgreiða okkur en það hafðist á endanum. Við fórum, glöð yfir að þá væri þetta afstaðið, nú þyrftum við bara að bíða í 3-4 vikur og þá væri allt klárt, kennitölurnar kæmu í pósti.
Við biðum og biðum og biðum og biðum!! Ekkert kom og það endaði með að Hrafnhildur hringdi á mánudaginn fyrir okkur (svona til að komast hjá misskilningi) með áðurgreindum upplýsingum.
Hvað um það eftir skóla í gær fórum við Hrafnhildur til Ski, tókum Eyjólf með því hann þurfti að sækja um kennitölu. Eiginlega var ég með hnút í maganum yfir þvíað ef þessi kerlingarbeygla væri þarna - en mikið varð mér létt, þarna voru tvær konur og hvorug þeirra var beyglan. Mér létti mjög og við gengum samviskulega inn og TÓKUM MIÐA og fengum afgreiðslu og þá reyndust kennitölurnar vera komnar þannig að konan prentaði skjalið út og afhenti mér. Þannig að í leiðinni sótti ég um skattkort fyrir Hauk og það kemur í næstu viku. Næsta mál á dagskrá er að skrá okkur hjá heimilislækni, skrá okkur inn einhversstaðar til að fá barnabætur, stofna bankareikning og ýmislegt fleira sem staðið hefur á vegna kennitöluleysis.
Þetta var semsagt sagan um kennitölurnar okkar

Hlaupablogg:
Hitti Bríeti nágrannakonu mína í morgun, hún ætlar að verða samferða í skokkinu og síðan er planið að fara í þreksal einhverja aðra daga til að styrkja sig. Ekkert skokk í dag en það verður í fyrramálið, samkvæmt plani
Annars verð ég að segja ða það eru mikil plön í gangi hjá okkur íslensku konunum hér, legg aðeins eitt í einu á ykkur.... Galdhöpiggen 2469 m hæsta fjall Noregs....legg ekki meira á ykkur í bili.Mataræðisblogg:

Góða skemmtun