Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Hver vill vera memm??

08. september 2009 klukkan 10:54
Eftir að hafa setið drjúga stund yfir bókunum þá er það alltaf sama sagan, ég fer að ókyrrast og langar í eitthvað. Löngunin verður svo mikil í eitthvað að ég enda auðvitað á því að standa upp og athuga hvað sé að finna í ísskápnum. Þetta er skárra ef ég er mjög meðvituð og hef ávextina á áberandi stað og þá eru þeir það fyrsta sem ég gríp, sem er jú jákvætt. Þá fer ég að koma að því sem plagar mig verulega en það er sú staðreynd að með því að sitja á skólabekk þá margfalda ég áhættuna á að ég verði spikfeit!!!! Og það vil ég ekki!!!! Þess vegna hleyp ég þrisvar í viku!!!!! Ég hef hins vegar ákveðið að byrja 100% á ddv, hef alltaf verið svona hálfpartinn í því eftir að ég komst í kjörþyngd en nú verð ég að hefja forvarnaraðgerðir. Þess vegna er spurning hvort það væri ekki hægt að stofna smá grúppu sem hefði samskipti í gegn um sameiginlega bloggsíðu eða bara tölvupóst til að styðja hver aðra. Kíkti á netið og hér er engar vigtanir að hafa nema í 2-3 tíma akstursfjarlægð og það er of langt fyrir mig.
Fer í búð á eftir og ætla að kaupa vigt, ávexti, grænmeti og gervisykur og svo skal ég byrja í fyrramálið. Þá mun ég vigta mig og skrá á góðan stað og kannski set ég mér einhver markmið Laughing
Þá er komið að aðalspurningunni....Hver vill vera memm??

p.s. þið getið ekki ímyndað ykkur hvað norðmenn borða mikið brauð!!!!
 
Bebba
Sæl sæta spæta

Fyrst þegar ég las þetta, hugsaði ég ,,ohh ég get það ekki alveg strax, æ ég verð að gera þetta þegar mér dettur í hug" en svo hugsaði ég ,, hey ég er búin að ýta þessu á undan mér núna í marga mánuði, afhverju ekki núna, afhverju ekki að nota þetta sem upphafspunkt" Svo niðurstaðan er, ,,ég er með"

Ég þarf einmitt að fara í borgó í dag og þá versla ég grænmeti og ávexti og fylli nýja stóra ísskápinn minn, nú verður þetta tekið á hörkunni.
#1
08. september 2009 klukkan 11:02
 
Ingibjörg
Sæl essgan
það liggur við að ég vilji vera memm...en kannski ekki strax
kannski eftir áramót, er það í boði..?
#2
08. september 2009 klukkan 12:52
 
Margrét
Ég er sko memm! Geri fátt og lítið annað en að sitja á rassgatinu (þegar ég er ekki að hlaupa á eftir börnum) og ét skelfilega vitlaust. Sé ekki fram á að hafa tíma fyrir allt sem ég ætla að gera hreyfingarlega séð og hef ég tæklað það þannig hingað til með því að gera ekki neitt, sem er auðvitað engan veginn nógu gott. Gott að fá smá "vörtjúal" spark í rassinn ;)

Bebba...við getum svo sparkað almennilega í rassinn á hvor annarri...ekki langt að fara til að sparka ;)
#3
08. september 2009 klukkan 15:01
Býð fram stuðning minn á spjalli fyrir áhugamenn um danska kúrinn þar sem ég er nú orðin aðstoðarmaður eða hinn dyggi þjónn vefstjórans.
http://ddvspjall.forumsfree.org/
#4
08. september 2009 klukkan 15:56
 
Þórunn Harðar
Ég get verið memm!

kv. Þórunn

ps. Já ég man sko hvað mér blöskraði brauðát Norðmannanna; brauð, pönnukökur og pylsur í öll mál . . .
#5
08. september 2009 klukkan 18:53
 
Sigga Júlla
Þetta er frábært, stelpur:):) Og takk hamli sveppur fyrir þitt framlag, búin að merkja spjallið með bókamerki;)
#6
09. september 2009 klukkan 13:25
 
Gunna
Sæl!
Rakst hér inn frá tengli á Bebbu síðu :o) Er ekki ágætt að hafa einhvern memm líka sem er í sama landi ;o)
#7
10. september 2009 klukkan 18:53
 
Sigga Júlla
Jú það er frábært Gunna;)
#8
11. september 2009 klukkan 04:56

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.