Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

laugardagsmorgun

05. september 2009 klukkan 09:23
Jæja þá er kominn laugardagur og enn ein vikan liðin. Við erum búin að vera hér í mánuð og rútína komin á mannskapinn.
Fögur fyrirheit um að byrja að skokka í vikunni sem leið var kastað út um gluggann en ég hef verið að púsla mér saman eftir kvefpestina sem ég fékk um daginn.
Haukur átti afmæli í gær og í því tilefni buðum við þeim íslendingum sem við þekkjum hér og voru heima, þannig að í gærkvöldi voru hér átta fullorðnir og fjögur börn. Það var mjög gaman og ég held þetta hafi verið fín tímasetning fyrir alla, bæði nýbúa hér og svo þá sem lengur hafa verið. Það er rosalega mikilvægt að vita af íslendingum hér sem maður getur leitað til ef eitthvað er og svo mikið er víst að hér stöndum við saman.
Það má segja að gærkvöldið hafi verið kvöld stórra "plana"!
Karlmennirnir í hópnum plönuðu veiðiferðir upp um öll fjöll en einn í hópnum hefur áður búið hér í Noregi og bjó þá í fimm ár og þekkir mjög vel til. Við konurnar plönuðum gögnuferðir, skíðagöngukeppni, hjól og skokk þannig að það lýtur út fyrir að það verði nóg að gera!!! Og þá betra að skella sér á gönguskíði um leið og snjórinn kemur og þar á undan að vera duglegur í annarskonar hreyfingu!! Það er allavega ágætt að við erum að æsa hverja upp í þetta og þá er nú líklegra að eitthvað verði úr Cool
En hvað um það ég ætla nú að byrja að skokka/ganga þrisvar í viku og fer helgin í að undirbúa mig fyrir það (andlega) heheheh.

Í gærmorgun fórum við Hrafnhildur í verslunarferði til Svíþjóðar þannig að hér eru allir skápar fullir en eins og ég hef áður sagt þá fer maður til Svíþjóðar að versla ýmsa pakkavöru, kjöt, álegg og osta, já og áfengi.
Ég kaupi nú mjólkurvöruna hér í Noregi og eins brauð, ávexti og grænmeti.

Hér hefur rignt slatta undanfarið en það er ótrúlega fyndið hvað það skiptir fljótt úr sól og blíðu yfir í RIGNINGU, veðarabrigðin eru alveg þónokkur en hér er auðvitað enginn vindur svo talandi sé um. Núna er gott veður útihálfskýjað og sjálfsagt 15 stiga hiti en það gæti alveg rignt seinnipartinn, hver veit. Ég ætla að skella mér í göngutúr á eftir og svo er spurning hvort við förum eitthvað í dag eða á morgun til skemmtunar fyrir strákana en við verðum eiginlega að gera eitthvað um helgar fyrir þá því maður slappar ekki af í 50 fermetrum og maður getur ekki ætlast til að þeir sitji bara og liti og leiri allan daginn á meðan ég læri og Haukur horfir á Eurosport!!! Nei, það gengur bara alls ekki upp. Það er ávísun á mjög rafmagnað andrúmsloft, svo mikið er víst.

Í kvöld er svo planið að grilla en Haukur fékk grill frá okkur í afmælisgjöfSmile og svo er það sem allt snýst um í dag eða í kvöld réttara sagt, Ísland-Noregur landsleikur í fótbolta.

ÁFRAM ÍSLAND!!

 
Anna Lisa Hilmarsdottir
já áfram Ísland :) Oooo það er svo faman að fylgjast með ykkur :) Mig dreymdi í nótt að ég væri í heimskókn hjá ykkur og ég fór með þér í skólann hahah við vorum að skoða eitthvað í smásjá og svoleiðis, mjög fyndið.

Maður verður að vera duglegur að kvitta þegar maður er svona dugelgur að lesa bloggið ;)

Knús frá Íslandi
#1
05. september 2009 klukkan 09:38
 
Margrét
Líst vel á þessi plön hjá ykkur :) Og já...sænskt brauð er ekki ætt! ;)

Og munið líka að eins hlýtt og það getur verið á sumrin þá getur líka verið skelfilega kalt á veturna! Ullarnærfötin blíva og ekkert annað ;) Ekki óalgengt að það fari í ca -20°C þannig að klæðið ykkur vel :D

Knús...
#2
05. september 2009 klukkan 10:45
 
Sissaa
Bara að kvitta fyrir innlitið. Les reglulega bloggið þitt Sigga mín, gaman að því. Hafið það gott og njótið blíðunnar á meðan hún er! ;);)
#3
05. september 2009 klukkan 13:11

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.