Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

...er du frå Island? Kjenner du Bjarni???

02. september 2009 klukkan 11:06
....jú ég þekki Bjarna, hann er sko mágur minn og er greinilega eftirminnilegur hér í Ås! Ef þú lest þetta Bjarni þá var þetta Tim-eitthvað sem spurði en ég er með honum í einum kúrs.

Það er allt eins og blómstrið eina hér í Ås.
Stefán fór til Døbak í gær á sína fyrstu badmintonæfingu hér í Noregi. Honum leyst bara vel á þetta, það voru um 15 krakkar á æfingunni og bara gaman. Hver æfing er í tvo tíma og ég held þrisvar í viku. Standardinn er svona la-la en ef Stefán vill komast á meiri krefjandi æfingar þá þyrfti hann að fara til Osló eða Moss, við sjáum til, kannski dugar þetta honum.

Ég byrjaði í skógmælingakúrsi í morgun sem mér líst vel á, það verður töluverð vinna en leggst bara vel í mig - kemur sér vel að hafa farið í nokkrar skógmælingaferðir með Arnóri, vissi alltaf að ég mundi græða á því.

Var að lesa smá grein um svínaflensubólusetningar.....munið eftir að taka lýsi gott fólk!!

Hér kom maður áðan og losaði stífluna í niðurfallinu á baðinu.....jibbíííí!!!

Við fáum sófasettið á morgun....jibbííí!!!

Á föstudaginn ætla ég til Svíþjóðar að versla og um kvöldið verður smá veisla fyrir Hauk sem verður fjörtíu og eitthvað..... Smile

Á morgun verður fyrsti hlaupadagurinn minn Cool

Það er eitt sem ég hef verið að spá...eru allir (nema Gamli sveppur) hættir að nenna að blogga?? Er það ekki lengur inn eða.....? Ég ætla að halda áfram að blogga á meðan ég hef eitthvað til að segja frá....verð að segja að ég sakna allra bloggvinanna sem voru aktívir hér fyrir nokkru síðan, en við erum víst ekki eins og misjafnt hvað við höfum þörf fyrir að tjá okkur Tongue out

Góðar stundir
 
Margrét
Gaman að heyra að allt gengur vel.

Held að botninn hafi dottið mikið til úr blogg"nennu" manna...ég er einmitt að finna það sama og þú, miklu færri blogg sem maður getur lesið...Ég hef nú stundum hugsað hvort maður eigi að taka upp þráðinn, en mér finnst einhvern veginn ekkert markvert að gerast þannig að ég hætti alltaf við...ætti kannski bara að hætta þessum aumingjaskap og byrja ;) Og það er varla hægt að ég hafi ekki þörf fyrir að tjá mig...stundum þegar ég byrja að tala þá get ég ekki hætt! ;) Blaðra út í hið óendanlega...líka þegar ég byrja að kommenta :þ

Gangi þér vel í hlaupunum (og á hlaupum) og eins með allt annað!

Knús
#1
02. september 2009 klukkan 11:24
 
Bebba
takk fyrir bloggið, já ég þarf að fara að blogga aftur, hef örugglega nóg að segja frá. gangi ykkur vel og ég bíð spennt eftir myndum úr íbúðinni þegar hún verður orðin meira mubleruð en þegar ég var þarna hjá ykkur. Eftir loppumarkað og sófasettið náttúrulega hehe.
knús af loftinu
#2
02. september 2009 klukkan 11:25
Plöntugreiningarpróf.. Snilld... Æi.. mosar eru náttúrulega bara steypa... B er stórfínt... Ég meina ég sló saman sótstör og mýrarstör undir álagi á Landsmóti, ég meina það er klikk.... Þannig að undir pressu þá geta einföldustu hlutir klikkað.... Flott hjá þér.... Og gangi þér vel að hlaupa... Ég er sjálf farin að hlussast milli ljósastaura, varlega... En hleyp ekkert þessa dagana og labba ekki heldur því ég hef ekki hundinn.. Valdi er með hann í Hrútafirði.. Ég bara get ekki labbað/hlaupið án hans.... Skelltu kveðju á hann Jolla frá mér..
Bestu kveðjur frá Hvanneyri...
#3
02. september 2009 klukkan 20:37
 
Anna Lisa Hilmarsdottir
Það er frábært hvað þið eruð að fíla ykkur flott þarna í Ási :) Ég les líka alltf bloggið þó svo að ég sé ekki sú duglegasta að kommenta, maður er alltaf að flíta sér. Ég er samt svo glöð að geta séð hvað þið eruð að bauka og að það gengur allt svona vel :)

Bið að heilsa öllum

kv af Klapparholtinu
#4
03. september 2009 klukkan 07:59
 
Bjarni
Hallo hallo

Ég bið að heilsa Tim, hann er drengur góður, já og ef þið rekist á Ragnar og Hrafnhildi þá þúsund kveðjur þangað líka. Gott að heyra að allt gengur vel hjá ykkur. AAAaaaa verslunarferð til Sverige, er það ekki Nordby eða Svinasund? Væri alveg til í að kíkja með ykkur.

Kveðja, Bjarni
#5
03. september 2009 klukkan 08:17

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.